03.09.1913
Neðri deild: 50. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2143 í C-deild Alþingistíðinda. (1407)
93. mál, hallærisvarnir
Pétur Jónsson:
Mér féll ekki vel í geð að heyra háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.) tala með svo býsna mikilli léttúð um hallæri. Mér virðist ekki að hallæri hljóti að vera svo fjarlægur hlutur, að um það megi tala með léttúð. Hallæri sprettur af þeim atburðum, sem láta alls ekki að sér hæða. Við getum aldrei verið vissir um að hallæri sé ekki í nánd. Það getur reyndar hugsast, að hallæri í þeim skilningi sem gert er ráð fyrir í þessu frumv., komi ekki fyrir í hálfa eða heila öld, en það er engin vissa fyrir því, að það geti ekki alveg eins orðið á næsta ári eins og eftir hundrað ár. En setjum svo, að hundrað árin næstu liði án þess, og setjum jafnframt svo, að sjóðurinn verði stofnaður eftir þessu frumvarpi nú þegar. Þá mundi hallærinu, ef það kæmi fyrir, verða mætt með heillar aldar taki. Þetta er tilgangur frumvarpsins. Það er ekki að eins tilgangurinn, að allir þeir sem nú eru uppi, fylgist hér að. Það er líka tilgangurinn, að kynslóðirnar fylgist að. Og þegar samvinnan varir ekki að eins í nútíð, heldur líka í framtíð, þá mun sá kraftur fást, sem ekki hefir áður þekst.
Háttv. framsögumaður tók þetta skýrt fram í framsögu sinni, og þetta er aðalatriðið í þessu máli. Við eigum að mæta voðanum sameinaðir en ekki sundraðir, við efgum að mæta honum ekki að eins í samtið, heldur líka í framtíð. Þess vegna get eg ekki felt mig við tillögu háttv. 2. þm. G.-K. (Kr. D.), sem annars er hlyntur þessu máli, um það, að menn verði látnir sjálfræðir um, hvort þeir verði með eða ekki.
Þegar um þetta er að ræða, þá er aðalatriðið að allir fylgist að. Og úr því að því er ekki að heilsa, að allir geri það af fúsum vilja, þá verða sumir að gera það. nauðugur viljugir. Hitt játa eg, að það hefir ekki mikla þýðing í mínum augum, að gjaldið til sjóðsins sé svo hátt, sem ákveðið er í frv. Eg gæti felt mig við að það væri tiltekið talsvert lægra. Eg er heldur ekkert ákafur með því að endilega verði byrjað á sjóðnum á næsta ári. Mér er það ekki svo mikið kappsmál, að eg geti ekki felt mig við að það verði hugsað betur, áður en byrjað er. En því fyr sem byrjað er, því betra er það.
Háttv. 2. þm. G.-K. (Kr. D.) gerði mikið úr gjöldunum, sem þetta hefði í för með sér. Hann mintist á nefskattana eða persónugjöldin og sagði, að þetta gjald mundi verða tilfinnanleg viðbót við þau. En það er aðgætandi, að þetta gjald mundi að eins verða tilfinnanlegt fyrir þá, sem fátækastir eru, og fyrir þá mundi líka sjóðurinn verða langmest trygging. Þeir finna bezt, hvar skórinn kreppir, ef mikið misæri kæmi. Hann tók líka fram, að ekki væri rétt að íþyngja sveitasjóðunum með þessu. En hverjir mundu hafa gagn af þeirri tryggingu, sem hér er átt við, ef ekki sveitasjóðirnir? Stórar misfellur koma einmitt harðast niður á þeim. Eg er viss um að sveitarþyngsli væru óvíða mikil, ef hallæri hefði aldrei komið fyrir.
Háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) tók í sama strenginn og vildi ekki íþyngja fátæklingunum. En því er nú hagað svo til í frumv., að ekki þarf að láta gjaldið koma niður sem nefskatt, frekara en mönnum sýnist í hverri sveit.
Hann hallaðist fremur að því, að landssjóður legði fram fé til sjóðsins. Það er líka tilætlunin, að hann leggi nokkuð í sjóðinn. En það hefir ekki þá þýðingu, að frelsa gjaldþegnana frá útgjöldum. Eins og hér hefir verið tekið fram áður í ræðu, eru það ekki skattarnir sem íþyngja mönnum, heldur gjöldin. Við ákveðum, hvaða gjöld skuli leggja á landssjóðinn, og þau gjöld verða gjaldþegnarnir að greiða, á hvern hátt sem þeir gera það. Hér er um það að ræða, að leggja gjaldið réttlátlega á menn. Ef það þykir ekki réttlátt að leggja það á hvert nef, þá má jafna því niður eftir efnum og ástæðum. Og réttlátari máti er ekki til.