03.09.1913
Neðri deild: 50. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2155 í C-deild Alþingistíðinda. (1411)

93. mál, hallærisvarnir

Lárus H. Bjarnason:

Eg ætla að eins að víkja nokkrum orðum að háttv. framsögum. nefndarinnar. Hann játaði með mér, að eigi væri fyrirsjáanleg nein hallærishætta, sízt utan Norðurlands; þó að hann vitanlega héldi því fram, að hallæri gæti komið fyrir.

Viðvíkjandi drepsóttar-hættunni skal eg leyfa mér að benda á, að sú hætta er minni nú en áður. Læknar eru nú langtum fleiri en áður, og lyfjabúðir í hverjum landsfjórðungi og kostnaðurinn við varnir gegn drepsóttum mundi mestmegnis lenda á landssjóðnum.

Og þótt »landsins forni fjandi«, hafísinn, leggist að landinu, þá getur ekki stafað eins mikil hætta af honum og áður. Við höfum nú bæði gufuskipaferðir og síma. En þótt svo færi, að hvorugt stoðaði til fulls, þá væri undir öllum kringumstæðum hægt að koma nægum birgðum upp í Borgarnes, og þaðan mætti koma þeim langt áleiðis norður á við, alténd í Húnavatnssýslu. Þá ættu líka kornforðabúrin að geta komið að góðu haldi. Háttv. framsögu maður lét reyndar í ljósi nokkurn vafa á því, að þau mundu verða stofnuð. En eg tel mikla spurningu, hvori eigi að hjálpa því fólki, sem ekki vill hjálpa sér sjálft.

Þá sagði háttv. framsögum. að sýslunefndir hefðu ekkert fé til að bæta úr skorti manna ef hallæri kæmi. Vitanlega hafa þær ekki svo miklar tekjur; en þær geta grípið til annara ráða. Þær geta tekið fé til láns. Viðlagasjóður ætti ekki að vera ófús á að lána undir slíkum kringumstæðum. (Sigurður Sigurðsson: Viðlagasjóður er allur í útlánum). Ef hann getur það ekki, þá er að snúa sér að bönkunum. (Sigurður Sigurðsson: Þeir eru tómir). Þeir eru ekki tómir, að minsta kosti ekki eins innantómir og sumir þingmenn.

Eg gæti nefnt banka, sem hefir lánað hundruð þúsunda til eins einstaks félags. Þá sagði háttv. þm. að landsstjórnin hefði ekki vald til að hjálpa í hallærisárum, en þetta er ekki rétt. Landstjórnin hefir ekki einasta vald til að hjálpa, heldur ber henni jafnvel skylda til að hjálpa samkv. 4. gr. ráðherraábyrgðarlaganna. Og eg er þess fullviss, að hver sem væri ráðherra, er hallæri bæri að dyrum, þá myndi hann telja það siðferðislega skyldu sína að hlaupa undir bagga.

Eg skal í þessu sambandi minna á að landsstjórnin hefir stundum jafnvel verið of ljúf á lán- og styrkveitingar; nægir í því efni að minna á heimildarlaust lán til Vífilsstaðahælisins og styrkinn til að sækja alþjóðafundinn í Buda-Pest. Hversu miklu fremur myndi landsstjórnin þá ekki hlaupa undir bagga ef hallæri stæði fyrir dyrum?

Þá vildi háttv. þm. færa frv. til bóta, að með því ykist Landsbankanum veltufé, en úr því get eg ekki gert mikið, þegar af þeirri ástæðu, að landsbankinn yrði að hafa fé þetta, sem ætti að vera nokkurs konar hjálp í viðlögum, á takteinum.

Þá hélt háttv. þm. því fram, að málið væri nægilega rætt, þar sem Torfi Bjarnason hefði gefið út ágætis-ritgerðir um þetta efni, en er háttv. þm. viss um að almenningur hafi lesið ritgerðir Torfa? Því miður má telja vist, að almenningur hafi ekki gert það, enda. heyrðist mér háttv. þm. játa því, að menn hefðu hingað til ekki fundið ráð við hallærishættunni.

Háttv. þm. sagði, að jafna mætti gjaldinu niður eins og aukaútsvari og þá réðu kjósendur því í rauninni, en þetta er ekki annað en orðaleikur, því að háttv. þm. Veit það eins vel og eg, að það eru sveitastjórnirnar, sem jafna niður, en ekki kjósendur. (Ólafur Briem: En þeir kjósa sveitastjórnirnar). Já, víst kjósa hrepps- og kaupstaðabúar sveitastjórnir, en til fleiri ára í senn og þess verður líklega langt að bíða, að sveitastjórnir verði kosnar með væntanlegt hallæri, einhverntíma í væntanlegri eða óvæntanlegri framtíð, fyrir augum.

Eg skildi háttv. þm. ekki vel, þegar hann var að tala um hallæri í Lundúnum og Indlandi í þessu sambandi, en svo mikið skildist mér samt, að hann styddi með því tali okkar mál en ekki sitt, því að mér vitanlega hafa Bretar hvorki stofnað hallærissjóð í Lundúnum né á Indlandi.

Þá var háttv. þm. hræddur um að ekki yrði til mikils að vísa málinu til landsstjórnarinnar. Það má vera, en það hefði þó altaf unnist það, að með því móti fengist vissa um skoðun og undirtektir héraðsstjórna um málið, og það eitt út af fyrir sig væri mjög mikilsvert.

Það mun sannast, að verði málið barið fram nú, þá verður það ekki vinsælt. Hins vegar mundi málið, jafnfallegt og það er að hugsuninni til, ekki að eins þola nokkra bið, heldur jafnvel batna við það, því að sá er huliðskraftur hvers góðs máls, að því veg fylgi eftir því sem tímar líða.

Eg hefi samið rökstudda dagskrá sem eg með leyfi hæstv. forseta les upp:

»Með því að frumvarpið stofnar til þungrar skattaálögu á almenning án fyrirsjáanlegra brýnna nauðsynja, enda sjálfgefið að kjósendum gefist kostur á að átta sig rækilega á slíku nýmæli, þá tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá og vísar jafnframt frv. til landsstjórnarinar til frekari undirbúnings og eftirgrenslunar um undirtektir héraðs- og sveitastjórna.

Eg vildi að eitthvað þessu líku yrði endir málsins nú á þessu þingi. En falli dagskráin, mun eg fylgja tillögum minni hlutans.