09.07.1913
Neðri deild: 7. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 169 í C-deild Alþingistíðinda. (143)
23. mál, stofnun Fiskveiðasjóðs Íslands
Flutningsm. (Björn Kristjánsson):
Þetta frumv. er fram komið samkvæmt beiðni kjósenda. Það var samþykt á fundi í kjördæmi okkar, að verja þessu fé, sem orðið hefir að ásteytingarsteini hér í þinginu að undanförnu, í þarfir sjávarútvegarins. Og það virðist vera eðlilegt að verja þessu fé að einhverju leyti til að vernda íslenzka sjómenn fyrir yfirgangi útlendinga.
Það vildi svo til, þegar þetta frumv. var prentað, að í háttv. Ed. kom fram annað frumv. líks efnis, um að stofna sjóð til strandvarna. Ef við hefðum vitað þetta, hefðum við sjálfsagt borið okkur saman við flutningsm. frumv. í Ed. En eg geri ráð fyrir að nefndirnar í báðum deildum vinni saman og sjóði saman úr báðum frumv. eitt frumv., sem nefndirnar koma sér saman um.
Okkur flutningsm. og öðrum, sem um sjávarmál hugsa, hefir þótt það eðlilegt, að sektir fyrir ólöglegar fiskiveiðar rynnu til eflingar sjávarútvegarins, og ekki sízt eins og frumv., sem fram er komið í Ed., fer fram á, til varnar landhelginni.
Eg sé ekki ástæðu til að ræða þetta nú, en býst við að það verði tekið til íhugar í væntanlegri nefnd, og leyfi mér þá að stinga upp á, að kosin verði 5 manna nefnd, sem beri sig svo saman við Ed.-nefndina. (Sig. Sigurðsson: Má ekki vísa því til nefndarinnar, sem kosin var í gær 2). Jú, eg felst á það.