05.09.1913
Neðri deild: 52. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2179 í C-deild Alþingistíðinda. (1437)
21. mál, íslenskur sérfáni
Frams.m. (Kristinn Daníelsson):
Það er eins með þetta frumv., að eg get vísað til nefndarálitsins um niðurstöðu nefndarinnar. Nefndin gat ekki orðið sammála um, að tiltækilegt væri að breyta því sem farið er fram á í frumv., að öðru leyti en því sem lagt er til á þgskj. 698.
Í 2. gr. frumv. er farið fram á, að hægt skuli að krefjast flutnings þurfalings á framfærslusveit þegar hann hefir þegið 100 kr. styrk af dvalarsveit. En það hefir komið fyrir, að manneskja hefir legið karlæg og verið á sveitinni árum saman, en læknir hefir bannað að flytja hana vegna hættu fyrir heilsu hennar. Auðvitað er það vanalegt að sjúklingar séu fluttir upp á von og óvon, þegar um það er að ræða að leita þeim læknishjálpar. En það er alt öðru máli að gegna, þegar verið er að hrekja þurfalinga úr einum stað í annan, og er það óforsvaranlegt að tefla á tvær hættur með líf þeirra. Það ætti ekki að þurfa lög til annars eins og þessa. En það er órétt, að sveitarfélag, sem vill flytja þurfaling í burtu á dvalarsveit hans, en getur það ekki vegna þess að læknir bannar flutninginn, skuli þurfa að liggja undir því að borga 1/3 hluta meðlagsins. Er það vegna þess, að í fátækralögunum er heimilað að flytja þurfaling yfir á framfærslusveit, þegar hann hefir þegið 100 kr. styrk af dvalaraveitinni.
Svo skal eg ekki fara fleiri orðum um þetta mái að sinni. Eg fyrir mitt leyti er samdóma flutningsmanni frumv., að allar 3 greinar frumv. ættu að verða samþyktar, en nefndin áleit ekki að því ætti að halda svo fast fram. En hvað brt. snertir, þá ona eg, að háttv. deild samþykki þessa litlu og sjálfsögðu réttarbót.