05.09.1913
Neðri deild: 52. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2180 í C-deild Alþingistíðinda. (1438)

21. mál, íslenskur sérfáni

Matthías Ólafsson:

Eg gat ekki verið svo heppinn, að vera samdóma háttv. meiri hluta í þessu máli. Reyndar kom okkur saman um, að ekki yrði það vinsælt að samþykkja frumv. eins og það lá fyrir, en við nefndarmennirnir, sem skifuðum undir nefndarálitið með fyrirvara, álitum heldur ekki heppilegt að samþykkja það með þessum breytingum, sem gerðar hafa verið á því, og er það af sömu ástæðum og með frumv. í heild sinni, að við álitum að það muni ekki verða vinsælt.

Aðalástæðan á móti þessum breytingum við frumv. er sú, að menn þyrpast svo mjög úr sveitunum í kaupstaðina, vinna þar svo þangað til þeir geta ekki meira, og þegar þeir eru orðnir þurfalingar, þá eru þeir aftur sendir til framfærslusveita sinna, sem svo verða að bera allan kostnað af þeim upp frá því, og það eins þó þeir hafi aldrei haft nein not vinnu þeirra. Það eru til ótal mörg dæmi upp á það, að menn alast upp á sinni sveit til fermingaraldurs; þá þegar þeir geta farið að vinna að nokkru gagni, þá flytja þeir sig til kaupstaðanna, vinna þar á meðan þeir geta og fyrst þegar þeir eru orðnir ósjálfbjarga aumingjar, þá eru þeir fluttir á fæðingarhrepp sinn, sem svo verður að ala önn fyrir, þeim það sem eftir er ævinnar.

Þetta er alveg óþolandi, að sveit, sem aldrei hefir nein not af einum manni, verður að sjá um hann að öllu leyti, þegar hann er orðinn ósjálfbjarga. Þetta batnaði svo, þegar það var ákveðið í fátækralögunum, að dvalarsveitin ætti að nokkru að bera byrðarnar af þurfalingum, svo ekki lentu þær allar á framfærzlusveitinni. En nú er farið fram á að þessu ákvæði sé kipt til baka. Ef það væri sanngjarnt. þá væri það líka sanngjart, að miða framfærslukostnað af barni, sem af hendingu fæðist í einum hreppi, við þann hrepp, sem það fæðist í. En það er ósanngjarnt Tökum t.d. förukonu,. Hún er á ferðalagi og elur barn í öðrum hreppi, sem það að hendingu fæddist í. Nei, það réttlátasta væri það, að allir ætti framfærzlurétt í sínum dvalarhreppi, en þá ætti um leið að vera hægt að setja skorður fyrir því að menn; kæmist in í hreppinn. Ef hreppavöldin hefðu leyfi til þess að banna mönnum að setjast að í hreppnum, þá væri sjálfsagt, að hreppurinn hefði allan framfærslukostnað af þeim mönnum, sem leyft væri að setjast að í hreppnum.

Og þegar um flutning þurfalinga er að ræða og um vottorð frá læknum um það, hvort megi flytja þá, þá er nú þess að gæta, að læknar geta átt sæti í fátækrastjórn, og telja þeir þá stundum varhugavert að flytja sjúkan þurfaling burtu úr dvalarsveitinni til framfærslusveitarinnar, sem þeir gerðu kannske ekki væru þeir sjálfir lausir við fátækrastjórn. Það gæti vel verið, að þeir myndu ráða frá flutningi, sem þó væri mögulegur, vegna þess að ef maðurinn dæi, sem flytja ætti, þá gæti verið að það yrði kent flutningnum og þá um leið lækninum, sem leyfði flutninginn. Því finst mér engin furða þó læknar séu stundum varkárir að leyfa flutning á svona mönnum.

Eg held því að það mundi valda óánægju að fara nú aftur að breyta þessu ákvæði. Enda er eg viss um, að það mundi koma mönnum mjög á óvart ef það væri gert.

Vil eg svo ekki orðlengja þetta meira vegna þess að eg hugsa að háttv. deild muni ekki samþykkja það.