05.09.1913
Neðri deild: 52. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2182 í C-deild Alþingistíðinda. (1439)

21. mál, íslenskur sérfáni

Jón Jónsson:

Eg hafði skilið svo háttv. meðnefndarmenn mína, að þeir gætu allir fallist á þessa miðlunartillögu, þótt þeir gætu ekki fallist á frumvarpið, eina og það lá fyrir í upphafi, — og mér kom það því dálítið á óvart, að 2 þeirra skyldu skrifa undir nefndarálitið með fyrirvara.

Háttv. þm. S.-Þing. (P.J.), sem hefir akrifað undir fyrirvaralaust, kannaðist undir eins við það, að hér væri ekki um annað að ræða en fullkomna sanngirniskröfu, og háttv. nefndarmenn mæltu engir á móti því, enda er hægt að færa ljós rök að þessu. Dvalarsveit þurfalinga á ekki að gjalda þess, að ekki er hægt að flytja hann á framfærslusveitina vegna sjúkleika, og framfærslusveitin á ekki að geta gengið upp í þeirri dulunni, að heimta þurfalinginn fluttan hverju sem tautar og neita að öðrum kosti að greiða fullan sveitaratyrk og sjúkrakostnað. Þetta er ekkert annað en rangsleitni. Og skal eg sýna það með nokkrum dæmum, hversu hart Reykjavík hefir orðið úti í þessu efni :

Fyrir sjúkling, sem var sveitlægur í öðru héraði, og lagðist nokkru eftir að hann kom til bæjarins, varð fátækrastjórnin að leggja út í legukostnað 1036 kr. og veita heimilinu 485 kr. styrk vegna veikindanna, eða samtals 1521 kr., og af því varð bærinn sjálfur að greiða að fullu 1/3 eða rúmar 500 kr. Fyrir annan sjúkling varð bærinn að svara út 699 kr. legukostnaði, fyrir þriðja sjúklinginn 689 kr., fyrir fjórða sjúklinginn 594 kr., fyrir fimta sjúklinginn 409 kr. o.s.frv. svo tugum skiftir, og jafnan greiða 1/3 af því að fullu og öllu úr eigin vasa. Þetta er því ósanngjarnara sem dæmi eru til, að fólk komi þannig félaust og meira og minna veikt til bæjarins, jafn vel með vitund ef ekki vilja hreppsnefndarinnar, og krefjist þess nokkrum dögum eftir komuna að vera lagt á sjúkrahús, og verður þá bærinn jafnan að bera 1/3 af öllum kostnaði. Það sjá allir, að þetta má nota sér, og þetta hafa menn notað sér til stórfeldrar byrði fyrir Reykjavíkurbæ. Þar á ofan bætist, að oft og tíðum verður allmikill dráttur á endurgreiðslu frá sveitunum, svo það er ekki litið fé, sem bærinn missir árlega í vaxtatap á útlögðu fé fyrir utan bein útgjöld að 1/3 hluta. Þessi litla tilhlökun, sem hér er farið fram á, er því ekki annað en bein sanngirniskrafa, miðuð eingöngu við þau tilfelli, sem öllum eru ósjálfráð, sem sé veikindi, er koma í veg fyrir flutning þurfamanns á framfærslusveit sína.

Breytingin stefnir jafnframt í mannúðaráttina til að afstýra því, að sjúkir þurfalingar séu hraktir á sveit sína, máske lítt ferðafærir, til að firra dvalarsveitina frekari kostnaði. Það er full ástæða til að gefa þessu gaum og reyna að draga sem frekast úr allri harðýðgismeðferð á fátæklingum, sem því miður hefir oft þótt brenna við hér á landi að m. k. á fyrri tímum. Fátæklingar eiga sannarlega ekki síður en aðrir, nema fremur sé, rétt á vernd þjóðfélagsins, einkum þegar veikindi bætast ofan á fátæktina, — og veit eg það, að háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ól.) er svo brjóstgóður og yfirleitt allir háttv. deildarmenn, að eg býst við að þeir séu mér samdóma í því.

Skal eg svo ekki fara frekari orðum um þetta mál. Býst eg við því að hv. framsögum. muni svara, ef einhverju þarf að svara. Vona eg að háttv. deildin fallist á þessa breytingu, sem er svo lítilvæg í samanburði við sjálft frumvarpið.