06.09.1913
Neðri deild: 53. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2203 í C-deild Alþingistíðinda. (1450)

26. mál, sparisjóðir

Stefán Stefánsson:

Það eru aðeins nokkur orð sem eg vildi segja viðvíkjandi því sem háttv. frams.m. meiri hlutans (M. Kr.) talaði til mín. Hann sagði að ákvæðið um upphæð sjálfskuldarábyrgðarlána og vigillána snerti ekki þá sparisjóði, sem þegar væru stofnaðir. Eg skil ekki, hvernig hann fer að álíta að svo sé. Eg fyrir mitt leyti verð að álfta, að það sé fult eins mikil ástæða til að fara eftir því sem sagt er með skýrum orðum í frv., og því, sem hv. framsögum. segir.

Í 1. gr. frumvarpsins stendur: »Sparisjóði má ekki nefna aðrar stofnanir eður sjóði en þá sem fullnægja ákvæðum þessara laga«. Stjórninni er vitanlega heimilt, að veita þeim sparisjóðum, sem þegar eru stofnaðir, undanþágu frá þessum lögum. En það er einungis heimild, henni ber engin sjálfsögð skylda til þess.

Annað sagði eg ekki, og held eg að það muni sannast í reyndinni, að eg hafi hér rétt fyrir mér, þótt svo kunni að fara að annað verði ofan á hér í deildinni í þetta sinn.