05.07.1913
Efri deild: 4. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (1497)
31. mál, mannskaðaskýrslur og rannsókn á fundum líkum
Guðmundur Björnsson:
Þetta frumv. á að ýmsu leyti skylt við frv. um sjódóma og rjettarfar í sjómálum, og virðist einsætt, að sama nefnd fjalli um bæði málin. Jeg leyfi mjer því að leggja til, að þessu frumvarpi Verði vísað til nefndarinnar, er kosin var til að íhuga frumvarpið um sjódóma og rjettarfar í sjómálum.