04.07.1913
Efri deild: 3. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (1499)
32. mál, réttargangsmátinn við undirréttina á Íslandi, viðauki
Júlíus Havsteen:
Þó að þetta frumv. sje ekki langt, er rjettast að rannsaka það í nefnd, og leyfi jeg mjer að leggja það til, að þriggja manna nefnd sje kosin til að íhuga það, að umræðunni lokinni.