10.07.1913
Efri deild: 6. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í B-deild Alþingistíðinda. (1519)
46. mál, veiði á Íslandi
Steingrímur Jónsson (3. kgk.) Jeg mun greiða atkvæði með nefnd í þessu máli, en ekki geri jeg það vegna frumv. sjálfs, því jeg held, að ekki verði mikið praktískt gagn að þessum viðauka við lög frá 23. marz 1880. Jeg er samdóma h. þm. Strand. (G.G,), að óviðkunnanlegt er, hvernig frv. er orðað. Því má ekki banna með öllu að taka egg? En ef varpeigendur eiga að hafa rjett til að taka egg, þá er hart að banna með öllu að gefa. Jeg þekki vel til í einni mestu varpsýslu landsins, og jeg er viss um, að þar er mjög lítið um það, að æðaregg sjeu seld; hins végar veit jeg til, að menn gefa þar dálítið af eggjum af góðsemi. Margir varpmenn segja, að nauðsynlegt sje að taka kaldeggin úr hreiðrunum, og sje það rjett, þá kæmi það að vísu í bága við það, að banna algerlega að taka egg úr hreiðri.
Jeg vil styðja nefndarkosningu í máli þessu, ekki beint vegna frv., heldur af því, að jeg vil að safnað sje í eitt öllum þessum friðunarákvæðum, og eins þarf ef til vill að breyta þá um leið nokkrum ákvæðum hinna gildandi laga.
Þessi atvinnuvegur er alls eigi lítilsvirði. Árið 1911 voru útffutt 4719 kíló eða 9438 pd. af æðardún, og er það meira en nokkru sinni áður og fengust fyrir það 120,000 kr. Þetta er ekki svo lítitl hluti af framleiðslu ekkar, og þar að auki er þetta skemtilegur og fallegur atvinnuvegur og afrekstursmeiri að sínu leyti en flest annað, þá vil jeg minnast á kvartanirnar um brot á þessum lögum. Jeg vil halda því fram, að alment geri varpeigendur of mikið úr brotum þessum. Í Þingeyjarsýslu er litið um æðarfugladráp. Það get jeg fullyrt af 16 ára reynslu sem sýslumaður. Vitaskuld er lögunum ekki hlýtt fullkomlega, en jeg er viss um, að ekki kveður eins mikið að lagabrotunum eins og varpeigendur halda fram. í sambandi hjer við hefur verið talað um öfund manna á varpbændum, og er sá sannleikur í því, að áður fyr, í hallærum, hefur mönnum þótt hart, að soltinn maður mætti ekki drepa fugl fyrir landi sínu. Um það heyrðist fyr meir kvartað hjá alþýðu, að æðarkongarnir væru verndaðir með lögunum, en aumingjunum bannað að bjarga sjer.