09.07.1913
Neðri deild: 7. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 174 í C-deild Alþingistíðinda. (152)
39. mál, skipun læknishéraða
Lárus H. Bjarnason:
Án þess að eg vilji á nokkurn hátt binda atkv. mitt, þá verð eg að láta í ljósi, að eg álít það ekki nema sjálfsagða kurteisi við flutningsmenn að setja nefnd í málið. Skilaboðin frá landlækni ættu ekki að verða því til fyrirstöðu.
Eg leyfi mér að styðja nefndarsetningu.