10.07.1913
Efri deild: 6. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í B-deild Alþingistíðinda. (1524)

46. mál, veiði á Íslandi

Jósef Björnsson:

Jeg vil aðeins taka það fram, að mjer þótti það undarleg að háttv. þm. Strand. (Guðj. Guðl.) ekki skildi mismuninn á eggjunum og lömbunum. Jeg tók það fram, að þegar unginn er kominn úr egginu, að þá væri hann sameign. Þó við göngum að því sem vísu, að gamall æðarfugl yfirleitt leiti til þeirra stöðva, þar sem hann hefur verið, þá getum við ekki fullyrt, að ungfuglinn lendi til þess varps, sem hann er ungaðar út í. Þar getur annað gilt um gamlar æðarkollur en ungfugl. Mjer finst því hjer vera um víðtækari sameign að ræða, en háttv. þm. Strand. (Guðj. Guðl.) vildi líkja því við. (Ómörkuð haustlömb, er enginn getur helgað sjer, eru að vísu sameign, en mörkuð lömb ekki, en þótt æðarfugl væri merktur, þá fylgir því merki enginn eignarrjettur, þegar fuglinn er kominn í annað varp. Háttv: þm. Strand. (Guðj. Guðl.) sagðist vilja hafa friðunarlögin sem ströngust, en jeg skildi þar ekki vel hinn háttv. þingm. Mjer finst, að Sá, sem vill hafa friðunarlögin ströngust, hljóti líka að vilja banna, að eggin sjeu tekin. Því þá tel jeg lögin ströngust, þegar ekki aðeins er friðaður fuglinn heldur líka ófæddur fugl — eða egg. Þessvegna tel jeg það sjálfsagt, að þeir, sem vilja hafa lögin sem ströngust, vilji friða eggin.

Sami háttv. þm. (Guðj. Guðl.) taldi, að lögin væru ekki mikið brotin, og að það sem það væri, þá stafaði það af kæruleysi eða bráðræði. En jeg hygg, að sumir geri það ekki af bráðræði, eða að minsta kosti væri það undarlegt bráðræði, þar sem menn ár eftir ár og jafnvel alla æfina drepa æðarfugl, en það hef jeg heyrt og grunur á leikið, að vissir menn gerðu öðrum fremur.

Um eggjagjafir hins háttv. þm. Ísf. (Sig. Stef.) talaði þingm. Strand. einnig, og með því að háttv. þm. Ísf. er nú dauður, sem kallað er, þá vildi jeg svara þar fáum orðum. Hinn háttv. þm. Ísf. gat vel hafa gefið egg án þess að skaða varpland sitt, því við vitum, að í hverju varpi eru mörg kaldegg, sem enginn ungi kemur úr, og sem sjálfsagt er að taka, og eru slík egg jafngóð átu, sem önnur egg. í jafnstóru varpi, og jeg geri ráð fyrir að sje í Vigur, er vel mögulegt, að mikið sje tekið af slíkum eggjum, en þá er lika augljóst, að hægt er að gefa egg, án þess spilt sje varpinu með eggjatöku.