10.07.1913
Efri deild: 6. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í B-deild Alþingistíðinda. (1525)
46. mál, veiði á Íslandi
Björn Þorláksson (5. kgk. þm.) Tilætlun okkar flutnm. með frv. þessu var aðallega sá, að reifa málið; hinu bjuggumst við aldrei við, að það færi óbreytt í gegnum deildina. Málið hefur nú þegar skýrst mikið við þær umræður, sem fram hafa farið. Jeg vil aðeins með fám orðum svara nokkrum athugasemdum, sem fram hafa komið við frv. H. 3. kgk. var óánægður með, að leyft væri að taka:
flokkur egg, en það vakti fyrir okkur fltm., að menn ættu að hafa leyfi til að taka kaldegg úr hreiðrum. Okkur þótti óeðlilegt, að banna mönnum það, enda eru þau oft æt. Ennfremur hjelt hinn háttv. þm. því fram, að varpeigendur gerðu alt of mikið úr því, hvað mikið væri drepið af æðarfugli, en jeg held ekki, að það sje rjett. Jeg er, ekki varpeigandi og hef aldrei verið það, en mjer hefur þó oft blöskrað, hvað mikið er skotið af æðarfugli, en sjerstaklega þó, hvað þeir, sem eru klaufar að fara með byssu, bana miklu af fugli, svo að nú hittist fjöldinn allur af æðarfugli, sem er með öllu ófleygur. Hjer er því einnig um mannúðarmálefni að ræða; að því leyti sem meðferð þingsins á máli þessu gæti orðið til þess, að fuglinn yrði minna skotinn. — Háttv. þm. Strandamanna hjelt því fram, að frelsi einstaklingsins yrði um of takmarkað með þessu frv“ en jeg get ekki sjeð, að það felist meiri frelsisskerðing í því, heldur en í þeim lögum, sem hjer hafa verið í gildi hin síðustu 20 árin eða í svo mörgum öðrum lögu,. Öll lög takmarka að meiru eða minnu leyti frelsi einstaklinganna. — Háttv. þm. Barðstr. sagði, að frv. væri illa undirbúið og óskaði, að leitað hefði verið álits — varpeigenda um land alt. Jeg játa, að það hefði verið æskilegt, að svo hefði verið gert. En nú hafa tveir varpeigendur hjer í deildinni látið í ljósi álit sitt, og styðja þeir báðir frv. Sjálfur er jeg ekki varpeigandi, svo að það eru ekki eigingjaraar hvatir, sem ráða afstöðu minni í þessu máli, heldur einungis umhugsun um almenningshag. — Hinn háttv. þm. vildi einnig vefengja það, að hærri skattur hvíldi á varpjörðum en öðrum jörðum. En þar hefur hann rangt fyrir sjer. Einmitt hinar mikluvarpjarðireru.einhverjar hinar verð mestu jarðeignir á landinu, t. d. Æðey, Laxamýri, Sauðanes, Hólmar í. Reyðarfirði o.fl.
Og hið háa mat á þeim er til orðið beint fyrir æðarvarpið á þeim.