12.07.1913
Efri deild: 7. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 49 í B-deild Alþingistíðinda. (1533)

33. mál, málaflutningsmenn við landsyfirréttinn í Reykjavík

Steingr. Jónsson, framsögumaður:

Jeg get sagt hið sama um þetta frv. og frumvarpið næsta á undan, það þarf ekki miklar málalengingar um það.

Nefndin, sem kosin var til að íhuga frumvarpið, ræður til að samþykkja það óbreytt. Þá er samþykt vöru lög um málaflutningsmenn við landsyfirdóminn árið 1905, var litið svo á, þar sem engin málaflutningsmannastjett væri til í landinu, að eigi væri hægt að gera þá kröfu til málafærslumanna við yfirdóminn, að þeir fengi verklega æfing, áður en þeim yrði veitt löggilding til starfa síns. Það hefur orðið venja, að veita kandídötum löggilding, þegar er þeir hafa lokið prófi. Þetta hefur málaflutningsmannafjelagið hjer í Reykjavík ekki talið heppilegt, og stjórnin hefur fallizt á það. Og því er farið fram á, að heimtuð verði verkleg æfing og verkleg reynsla af þeim, sem veitt verður þessi löggilding. Og það er talið óhætt að gera þessa kröfu nú. Nú eru málaflutningsmenn orðnir svo margir, að engin hætta er á, að ekki fáist nógu margir lögfræðingar til að flytja mál við yfirdóminn, þó að lög þessi verði samþykt. Er því farið fram á, að þeir einir fái löggilding, er fengið hafa nokkra verklega æfing í flutningi mála, unnið á skrifstofu einhvers málafærslumanns eða flutt mál fyrir undirrjetti, eða unnið að öðrum lögfræðisstörfum. Nefndin álítur, að þetta sje rjett gert, og ræður því til að samþykkja frv. óbreytt að efni til.

Þær breytingar, sem nefndin stingur upp á, eru aðeins orðabreytingar, er snerta tilvitnanir í lög. Fyrri lögin, sem nefnd eru í stjórnarfrv., eru nú úr gildi numin. Nefndinni þótti rjettara að vitna í núgildandi iðg. Seinni brtill. fer aðeins fram á að bæta við fyrirsögn laganna, er í er vitnað.