12.07.1913
Efri deild: 7. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í B-deild Alþingistíðinda. (1540)

34. mál, lán til byggingar íbúðarhúsa á prestssetrum landsins

Þórarinn Jónsson:

Jeg gat þess áðan, að eg byggist við, að 3000 kr. mundu að líkindum ekki nægja til að byggja fyrir íbúðarhús á prestssetri, og það jafnvel þótt hvorki væri um sjerlegt stórhýsi nje skrauthýsi að ræða. En þar fyrir vil jeg ekki, að landsjóður láni meira, jeg vil ekki fría prestinn með öllu við að leggja nokkuð fram til byggingarinnar sjálfur, auk þess sem að staðarhúsin mundu allmikinn skerf gera auk tillagsins. Það er ekki langt síðan farið var að byggja nokkuð að mun úr steini, og það er því næsta liklegt, að við meiri æfingu komist menn upp á að byggja ódýrara en nú gerist. Þegar þessa er gætt, er enn minni þörf á að vera nú að hækka lánsupphæðina, því að jeg vil um fram alt forðast að gefa undir fótinn með að byggja stærri og dýrari hús, en þörf krefur, en hætt við, að þessi háu lán geti orðið til þess. Það er ekki víst, að allir sjeu svo framsýnir, að þeir gæti þess, hvílika byrði þeir binda sjer og eftirmönnum sínum með hárri lántöku.

Einkum og sjer í lagi er það þó vegna þess, að nú er verið og hefur fyrirfarandi ár stöðugt verið að rannsaka byggingarefni til sveita, úr hverju væri hentast og ódýrast að byggja. Jeg hefi trú á því, að vjer getum innan skamms bygt ódýrara en nú gerist og vil því engan veginn hækka lán til þessara bygginga, þar sem það bæði getur bundið prestinum of þungan bagga á herðar og gert óhæfilega háa húsaleigu á jörðinni, yfir 200 kr., því jeg geng út frá því, að í staðarhúsunum sje nokkurt fje, sem verja má til byggingarinnar auk lánsins.