09.07.1913
Neðri deild: 7. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 177 í C-deild Alþingistíðinda. (155)
40. mál, hagur Landsbankans
Ráðherrann (H. H.):
Því fer að vísu fjarri, að eg sé því mótfallinn, að þessi nefnd verði skipuð. En hins vegar vil eg þegar láta þess getið, að eg tel afar litlar líkur til þess, að hún komist nú að þeirri niðurstöðu, að hægt sé að útvega fé með stofnum nýs veðbanka eða því um líkt. Stjórnin hefir gert sitt til þess, að reyna það, en, eins og hv. frams.m, (B. Kr.) sjálfur sagði, eru peningahorfurnar svo nú, að ekki er til þess að hugsa, að fá utanlands lán með sömu kjörum og áður, eða þannig, að menn mundu geta sætt sig við þau veðlánakjör, sem nýtt landsjóðslán í því skyni nú mundi hafa í för með sér. Og að hrúga útgjöldum á skattgjaldendur landssjóðs, til þess að útvega fé handa einstökum mönnum til að spekúlera með, það álít eg fyrir mitt leyti lítt hæfilega fjármálapólitík. — Að stofna nýjan veðbanka nú væri ekki heppilegt, þegar verðbréfa-“kúrs„ er svo lágur og vextir svo háir sem nú er. Það gæti spilt mjög fyrir slíkri stofnun í framtíðinni, ef hún neyddist til að byrja með því að selja bréf sín með afarmiklum afföllum. Hins vegar mætti reyna að nota heimildina samkv. lögum frá 1909, og reyna að koma út þeirri 1/4 milljón kr., sem er eftir að gefa út af bankavaxtabréfum 3. seríu, á sama eða líkan hátt eins og næst síðasta 1/4 miljónin var seld fyrir í Okt. í fyrra. Meira álít eg ekki að hægt sé að gera í svipinn, svo í hag komi, og yrði þá að draga nokkuð inn seglin í bráð með veðdeildarlán. Það er alls ekki víst, að að því væri í raun og veru sá bagi fyrir þetta land, sem að mörgum kann að sýnast í svipinn. Það er ekki eintómt hnoss og góðsemd, að draga útlent lánsfé inn í landið; því lán þurfa eigi að eins að ávaxtast, heldur og að endurborgast. Erlendis eru menn að sjá það betur og betur, að það er hál og varhugaverð braut að binda mikið útlent lánafé í venjulegum búnaðarframkvæmdum, húsabyggingum, jarðabótum o. s. frv., að eg ekki tali um eyðslueyri, sem oft hefir orðið úr veðdeildarlánunum okkar hér. Til stórfyrirtækja verður auðvitað ekki hjá því komist, að fá fé að, en til búnaðarframkvæmda, húsabygginga í kaupstöðum og þess háttar, ætti helzt að nægja það fé. sem sparast innananlands. Það getur komið eftirkomendum illa í koll, ef nálega hver þúfa í landinu er pantsett útiendingum fyrir lánum til fyrirtækja, sem ekki eiga fyrir sér að standa nema stutta stund. Til slíkra framkvæmda eru hentust innlend lán, með tiltölulega stuttum afborgunarfresti, en hitt er hættuleg skoðun, sem oft hefir heyrst hér á þingi, í blöðum og í fundaræðum, að það sé landinu bezt, að afborgunarfrestur á veðdeildarlánum sé sem allra-lengstur, því að þá er hætt við að svo fari, að alt það sem framkvæmt var fyrir lánsféð, hverfi úr sögunni, en skuldbindingarnar, höftin og kvaðirnar standi eftir og standi í vegi fyrir nýjum fyrirtækjum og framförum.
Þetta var nú að eins athugasemd, sem eg vildi gera, en ekki svo að skilja, að eg sé á móti því, að þetta mál sé athugað. Eg mun verða með því, að skipa nefndina, en eg vona að hún hafi það hugfast að fara varlega. Það er ekki til neins, að vera að ákveða að gera það og það, sem svo alls ekki er framkvæmanlegt, þegar ekki er lítandi við þeim kjörum, sem bjóðast.