14.07.1913
Efri deild: 8. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í B-deild Alþingistíðinda. (1551)
52. mál, sala á þjóðjörðinni Reykjum í Hrútafirði
Þórarinn Jónsson, flutningsm:
Það er ofboð einfalt mál, þetta frumvarp, sem hjer liggur fyrir, og háttvirtir þingdeildarmenn þurfa ekki langan tíma til að átta sig á því, Hjer er ekki farið fram á annað en það, að ráðherra veitist heimild til að selja þjóðjörðina Reyki í Hrútafirði. Ábúandi jarðarinnar hefur farið fram á það að fá hana keypta. en stjórnin hefur neitað um að selja hana. Ástæðan til þessarar synjunar er sú, að í landi jarðarinnar er löggilt höfn, við svonefndan Reykjatanga. Hún var löggilt árið 1893. Það mun hafa verið sprottið frá aðalverzluninni á Borðeyri, að farið var fram á þessa löggilding. Þá sótti vesturhluti Húnavatnssýslu allt austur í Víðidal, þangað verzlun. Um það leyti var svo farið að leggja upp vörur á Hvammstanga, þó að þar væri þá ólöggilt höfn. Það var ekki fyr en árið 1895, að þar var löggilt verzlun. Og jeg ætla, að kaupmenn á Borðeyri hafi æskt Löggildingar við Reykjatanga til að draga úr verzluninni á Hvammstanga. En það fór nú samt svo, að verzlunin drógst þangað, og hún fer altaf vaxandi. Og jeg held, að mjer sje óhætt að fullyrða, að það sje álit allra kunnugra manna, að engin verzlun verði nokkru sinni á Reykjatanga. Þar hefur enn eigi verið lagður nokkur steinn nje grunnur reistur til nokkurrar húsagerðar. Og ábúandi jarðarinnar, sem beiðist kaupa á henni, hefur fengið vottorð frá hreppstjóranum í Staðarhreppi og prestinum á Stað í Hrútafirði um, að engin líkindi sjeu til, að verzlun komist þar á stofn. Vestur Húnavatnssýsla sækir nú verzlun á Hvammstanga, nema Hrútafjörður að austan. Höfn er betri vestan megin fjarðárins, bæði á verzlunarstaðnum Borðeyri og við Kjörseyrartanga.
Þegar ábúandi jarðarinnar sótti um kaup á henni, fann sýslunefndin enga ástæðu til að leggja á móti sölunni. Hún undaniskildi aðeins frá sölunni landspildu upp frá hver, sem er í landi jarðarinnar, vegna sundskála, sem þar er og sýslan notar. En stjórnin neitaði að selja jörðina, af því að löggiltur verzlunarstaður væri í landi hennar.
Mjer finnst ekki ástæða til að stinga upp á nefnd. Öll skjöl málsins, beiðni frá ábúanda jarðarinnar um að fá hana keypta, eftirlit og virðing á jörðinni, álit sýslunefndar um söluna o. fl., liggja til sýnis á lestrarsalnum. Þar sem þessu háttar þannig um löggldinguna, eins og jeg hef tekið fram, tel jeg ábúanda jarðarinnar beittan misrjetti, ef honum er synjað um kaup á henni. Og hvernig sem menn annars líta á þjóðjarðasölu yfir höfuð, þá er ójafnaðarfullt að allir standi ekki jafnt að vígi, meðan þau Lög eru í gildi.
Jeg fer svo ekki fleiri orðum um málið við þessa umr., en vona, að háttv. þingdeildarmenn kynni sjer málið og gögn þess, áður en það kemur til 2. umr.