09.07.1913
Neðri deild: 7. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 179 í C-deild Alþingistíðinda. (156)
40. mál, hagur Landsbankans
Framsögum. (Björn Kristjánsson):
Hæstv. ráðh. gaf ekki von um það, að nú muni fást lán með góðum kjörum. Þetta er rétt, og það hafði eg gefið í skyn í ræðu minni áður. En hann taldi líka ófært, að landið tæki meira fé til þess að kaupa fyrir veðdeildarbréf. Það getur nú verið álitamál, en ef það er meiningin, að landssjóður hætti við þessa reglu — því í raun og veru hefir það verið hann, sem hefir lagt fram féð til veðdeildarlána síðan árið 1909, þá er gott fyrir bankann að fá að vita, hvort þingið ætlar að hætta Við þá stefnu. Verði það ofan á, þá verður hann, bankinn, nú þegar að hætta að veita veðdeildarlán. Nú hefir hann orðið að láta bréf, mikla fjárhæð, til tryggingar bankavaxtabréfum, miklu meira en alt sitt eigið veltufé, svo auðvitað getur hann ekki keypt meira. Og allir þekkja nú markaðinn erlendis fyrir verðbréf. (Ráðherrann: En afborganirnar?) — Nei, því að þeim verður að skila til útlanda, eins og hæstv. ráðh. hlýtur að vita.
Þá álítur hæstv. ráðh. að óheppilegt sé að stofna veðbanka. Það er rétt, ef hann ætti að taka til atarfa nú þegar. Það yrði að biða þess, að vextir yrðu lægri og eitthvað raknaði úr peningaþrönginni. En það stoðar ekki annað en að hafa lögin til, þegar þar að kemur. Þingið kemur ekki saman nema annaðhvert ár, og þess á milli er ekki hægt að semja lögin. Þess vegna er það ekki úti lokað, að rétt geti verið að semja þau nú; þótt ekki sé ætlast til þess, að þau komi í framkvæmd strax. Þá taldi hæstv. ráðh. æskilegt að snúa við reglunni, sem fylgt hefir verið frá því árið 1909, að landið legði sjálft fé til þess að lána út á fasteignir. Það getur verið, en nú eru menn orðnir svo vanir þessu í þessi 13 ár, frá því veðdeildirnar voru stofnaðar, að fá lán, viðstöðulaust, að þeir spyrja ekki einu sinni, hvort bankinn geti lánað, heldur byggja strax, hvað sem tautar. Þess vegna væri gott fyrir bankann að vita sem allra fyrst, hvort þingið sér sér fært að útvega fé til fasteignalána, svo að hann geti auglýst, hvort hann framvegis geti veitt slík lán, og þá þarf einmitt að skipa nefndina sem fyrst.
Hæstv. ráðh. taldi það enn fremur ekki heppilegt, að taka mjög löng lán. Þetta er rétt, og það gleður mig, að hann segir þetta nú, þar sem milliþinganefndin hafði komist að þeirri niðurstöðu, að rétt væri að hafa þau til 60–70 ára. Þegar leita þarf lána til útlanda, þá er hentugast að borga þau hratt, því að bæði þarf gífurlegar upphæðir, ef lánin eiga að vera löng, og svo liggur í hröðum afborgunum aðhald til þess, að taka ekki meiri lán, en nauðsynlegt er. Eg álít það hæfilegan afborgunartíma, sem nú er, sem er 25 ár á lánum út á timburhús, 35 ár út á steinhús og 40 ár út á jarðir. En því styttri sem tíminn er, því meira traust gefur það bréfunum og því hægra er að selja þau.
Eg þakka hæstv. ráðh. fyrir það, að hann er meðmæltur nefndinni, og það skal ekki verða Landsbankanum að kenna, ef skipun hennar kemur ekki að gagni.