15.07.1913
Efri deild: 9. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 75 í B-deild Alþingistíðinda. (1567)
53. mál, friðun fugla og hreindýra
Guðjón Guðlaugason:
Ekki get eg litið svo á, sem það sje nein hætta fyrir varpeigendur, þó að frumvarp þetta næði fram að ganga, vegna þess að þessi veiðiaðferð mundi eyða æðarfuglinum. Lundaveiðin fer fram á öðrum tímum en þeim, sem æðarfuglinn situr uppi.
Lundaveiðin mundi aðallega fara fram á sama tíma og kofnaveiðin, svo að lundinn og ungi hans eru veiddir á sama tíma og þyrftu hvorugt annað að syrgja. Á þeim tíma sem kofnaveiðin fer fram, situr æðarfuglinn ekki uppi í varplandinu; það er þá helzt blikinn, svo það eru mjög lítil líkindi á því, að veiðin mundi granda honum.
En það er annað, er mjer finnst að gæti verið athugavert við frumvarpið, og það er, að veiðiaðferð þessi er ómannúðleg, og það þyrfti jafnvel að banna að netin mættu liggja meir en dægur í einu, svo að lundinn ekki kveldist þar. Þessu atriði vil jeg beina til athugunar fyrir væntanlega nefnd í málinu.