15.07.1913
Efri deild: 9. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 75 í B-deild Alþingistíðinda. (1568)

53. mál, friðun fugla og hreindýra

Hákon Kristoffersson:

Jeg verð að leggja á móti því, að frumvarp þetta verði samþykt, því mjer finst þessi veiðiaðferð svo barbarísk í alla staði; alt annað væri, ef hjer væri að ræða um veiði með háf.

Annars vil jeg styðja mál flm. um, að þessu frumv. verði vísað til eggjanefndarinnar, því mjer finst lundinn meira skyldur sjónum en landi, og lundavarp og æðarvarp skyldara en lundi og rjúpa.