19.07.1913
Efri deild: 11. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 120 í B-deild Alþingistíðinda. (1600)
35. mál, ný nöfn manna og ættarnöfn
Sigurður Eggerz:
Jeg leyfi mjer að gera stutta grein fyrir atkvæði mínu. Mjer skilst, að tvær ástæður sjen fyrir frv. þessu. Fyrri ástæðan sje sú, að með lögunum eigi að koma í veg fyrir það; að tíðar og takmarkalausar nafnbreytingar valdi glundroða í viðskiftalífinu; en síðari ástæðan sje málhreinsunarástæða. Sú ástæða getur ekki komið til greina. Jeg hygg, að löggjafarvaldið geti alls eigi verndað málið með lagafyrirmælum. En annað getur það gert og á að gera: Það á að vanda sem bezt mál á lögum sínum; á þeim á að vera fyrirmyndar íslenzka. Eina ástæðan fyrir því, að farið sje að semja lög um þetta efni, er því sú, að nafnbreytingarnar valdi miklum ruglingi á viðskiftalífinu og örðugleikum. Reynslan mun hafa sýnt, að svo er ekki, því að þótt það kunni að mega finna einstök dæmi þess, þá er það ekki næg ástæða til þess, að farið sje að semja heila lagabálka til að lækna svo litla meinsemd. Jeg er þess viss, að þetta frv. er ekki knúð fram af því, að lífið og reynslan hafi gert kröfur til þess; heldur er það sprottið af hræðslu við framtíðina; menn hafa gert sjer grýlur útí loftið um hana.
Það er óviturlegt, að vera að semja lög, þar sem brýn nauðsyn kallar ekki að, og það sje jeg ekki, að hún geri hjer. Sjeu svo lögin óheppileg, þá er ver farið en heima setið. Og jeg er hræddur um, að hjer sje verið að smíða slík lög; það gefur bendingu í þá átt, hve ósammála menn eru hjer um margt.
Auðsætt er það, að stjórninni er hjer aukið töluvert erfiði. Jeg fæst að vísu ekki mjög um það. En þeim, sem um nafnbreytingarnar þurfa að sækja, eru líka sköpuð óþörf óþægindi, og mest fyrir þá sök er jeg algerlega móti frv.
Það getur að vísu verið, að ekki sje öllu minni þörf á, að lögskipa um nafnabreytingar, en var t. d. á lögunum um eggjasölu eftir vigt, sem nú eru komin í gildi, en margt getur þingið þarfara unnið, en að eyða tíma í slíkar lagasmíðar.