19.07.1913
Efri deild: 11. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í B-deild Alþingistíðinda. (1609)

42. mál, stofnun landhelgissjóðs Íslands

Sigurður Stefánsson; framsn.:

Háttv. umboðsmaður ráðherra (Kl. J.) spurði, hvort það mundi eigi ef til vill vefjast fyrir Landsbankanum að svara út í skjótri svipan slíkri upphæð, sem hjer er gert ráð fyrir. Jeg játa, að þegar jeg samdi frv., þá datt mjer eitthvað líkt í hug, en háttv. meðnefndarmenn mínir voru eindregið þeirrar skoðunar, að fjeð ætti að ávaxtast í Landsbankanum. En ef ekki er hægt, að trúa bönkum vorum, þá sýnist ekki annað ráð fyrir höndum, en að ávaxta tjeði útlendum bönkum, og er það þó mjög svo óviðkunnanlegt. Raunar gæti komið til mála að kaupa verðbrjef fyrir þessa peninga, en gangverð verðbrjefa er mjög svo óstöðugt, og gæti ef til vill orðið örðugt að koma þeim í peninga, þegar á þyrfti að halda. Öllum mun t. d. kunnugt, hvílíkri verðlækkun veðbrjef veðdeildarinnar hafa verið undirorpin, en fyrir það verður fyrst og fremst að girða, að þessi fyrirhugaði sjóður geti orðið fyrir tilfinnanlegum vanhöldum. Þótt Landsbankinn sje því miður eigi svo öflug peningastofnun, sem skyldi, þá hefur hann þó oft svarað út stórum upphæðum, enda ætti það eigi að vera alþingi ofvaxið, að sjá svo um álag bankans, að hættulaust væri að öllu leyti að trúa honum fyrir slíkri upphæð. auðvitað mundi og landstjórn og þing haga sjer eftir kringumstæðum bankans og ekki vera alt of kröfuhörð við hann: Jeg hygg því, þegar öllu er á botninn hvolft, að enginn háski mundi standa af þessari ráðstöfun.

Háttv. umboðsm. ráðherra mintist á, að taka hefði átt inn í lögin heimild fyrir stjórnina til þess að semja reglugjörð og skipudagsskrá fyrir sjóðinn. Í 4. gr. frv. er það tekið fram, að alþingi ákveði, hvenær fara skuli að nota sjóðinn, og virðist liggja næst, að stjórninni verði þá veitt slík heimild, því að engin þörf er á henni fyr.

Háttv. 6. kgkj. sagði, að æskilegt hefði verið, að nefndin hefði tekið eitthvað fram um, hvað stórt þetta fyrirhugaða skip ætti að verða. En menn verða að gæta þess, að nú erum við á hinu fyrsta byrjunarstigi þessa máls, og virðist engin þörf á að taka slíkar ákvarðanir, fyr en á að fara að nota sjóðinn. — Vel getur verið, að nota megi skipið til margs annars en landhelgisvarnar eins og háttv. 6. kgkj. þm. tók fram. En hræddur er jeg um, að það kunni að draga úr og trufla Iandhelgisvörnina, ef fara á að nota skipið í snattferðir fyrir landssjóð. En þegar farið verður að nota sjóðinn, þá fyrst er tími kominn til þess, að gera ákvarðanir um slíkt, enda er það fremur verk landstjórnarininnar heldur en alþingis, því að henni er auðveldara að nota sjer aðstoð fagfróðra manna í því efni sem öðru.