19.07.1913
Efri deild: 11. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 136 í B-deild Alþingistíðinda. (1613)
36. mál, nafnabreytingar og ný nöfn á býlum
Eiríkur Bríem (2. kgkj.):
Jeg vil taka undir með háttv. 3. kgkj. þm., að það er gild ástæða til þess, að þau býli, sem hafa t. d. haft nafn sitt frá þeim. tíma, er verið var að undirbúa hina síðustu jarðabók fyrir 60–70 árum, fái að halda nafni sínu, án þess að borga neitt fyrir það. Ef nafnið er orðið fest í manna munni, þá er líka sjálfsagt, að lögfesta það borgunarlaust. Það er almenningi. mikilsvarðandi, að full regla og festar sje í slíkum efnum, en jeg er hræddur um, að í slíkum tilfellum mundu menn kinoka sjer við, að fara að útvega býlinu nafnfesti. — Einnig finst mjer það sanngjarnt, að dálítið sje borgað fyrir skrásetninguna. Loks vil jeg skjóta því tif nefndarinnar, hvort hún sjái sjer ekki: fært, að orða brtill. við 1. gr. nokkuð öðruvísi. Mjer finst heldur óviðknnnanlegt, að kalla hvert það kot höfuðból, sem hvorki er hjáleiga, grasbýli eða þurrabúð.