10.07.1913
Neðri deild: 8. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í C-deild Alþingistíðinda. (163)
43. mál, samþykktir um hringnótaveiði
(Stefán Stefánsson):
Þetta frv. er komið fram eftir ósk útvegsbænda í Eyjafirði og samkvæmt áskorun þingmálafundar þar.
Hefir hreyfingin í þá stefnu átt sér stað um nokkur undanfarin ár, að bönnuð yrði með lögum öll hringnótaveiði inni á Eyjafirði. Síðastliðinn vetur var haldinn fundur um þetta mál, og mættu þar fulltrúar úr öllum hreppum í Eyjafirði, bæði austan og vestan fjarðanna, og kom þeim saman um, að þessi veiði, gerði svo mikið tjón, að nauðsyn bæri til að reisa skorður við henni svo skjótt sem auðið yrði. Þessi fundur gerði uppkast að samþykt, er síðan var sent oddvitum sýslunefndanna, með tilmælum um að leggja málið fyrir sýslunefndir Eyjafjarðar og Þingeyjarsýslu. Á fundunum var málið tekið til meðferðar og í Eyjafirðinum valin í sérstök sameiginleg nefnd bæði fyrir sýslunefndina og bæjarstjórnina á Akureyri. Sú nefnd lagði fram ítarlegt álit og komst að þeirri niðurstöðu, að nauðsyn væri á að hefta hringnótaveiði inni á Eyjafirði, þar sem reynslan sýndi að síldargöngur væru minni, óstöðugri og stopulli en áður var, einkum seinni part sumars. Áður en hringnótaveiðin byrjaði, var Eyfirðingum ið mesta hagræði að síldveiði í lagnet og nætur, en nú kemur slíkt varla fyrir og er það, eftir áliti fiskimanna, að kenna hringnótaveiðunum, og ekki nóg með það, heldur dragi líka úr. öðrum fiskiveiðum við þetta. Og sú hefir raun á orðið í Eyjafirði. Þess vegna er það eindreginn vilji manna þar að gerð sé tilraun til þess að vitneskja fáist, eftir því sem unt er, hvort herpinótaveiðin er ekki orsök til þessa. Eg skal taka það fram, að þó í frv. sé ekki sett neitt tímatakmark, þá er það þó að sjálfsögðu meiningin, að væntanleg samþykt gildi að eins um nokkur ár, 5 ár eða svo. Annars er það ekki hringnótaveiðin eingöngu, sem kvartað er yfir á Eyjafirði, heldur þykir og stafa af þeim óþolandi yfirgangur og jafnvel ójöfnuður þar sem þær eru reknar í landhelgi fyrir einstakra manna jörðum og inni í fjarðabotnum. Það er ekki nóg með það, að síldin hefir verið tekin í hringnætur, heldur líka veiðarfæri manna og enda komið fyrir að menn við annarskonar veiðar hafa verið inniluktir. Hafa menn því ekki eingöngu mist veiðina, heldur og beðið talsvert tjón á veiðigögnum sínum. Þetta þykir mönnum ófært að þola og sjá ekki annað ráð en að leita til löggjafarvaldsins til þess að fá þó eitthvað aðgert til endurbóta í þessu efni. Marga skýra menn hefir greint á um, hvort ekki væri heimilt að setja samþyktir um þetta án sérstakra samþyktar-laga, þar sem veiðin er rekin með opnum bátum, þótt þeir að vísu heyri til þiljuðum skipum. En þegar sýslunefndin í Eyjafjarðasýslu bar þetta undir stjórnarráðið í vetur, gaf það þann úrskurð, að það mundi ekki sjá sér fært að staðtesta samþykt, sem bannaði öllum skipum — þótt bátar væru notaðar — hringnótaveiði innan landhelgi eða inn á fjörðum. Því var málinu hreyft á þingmálafundum í vor og samþykt að leita til þingsina um að fá lög, sem heimila samþyktir um þetta efni. Á fulltrúafundinum, er eg áður gat um, þótti mönnum bezt henta, að landhelgislínan væri skammt fyrir utan Hrísey. Þar fyrir innan yrði hringnótaveiði bönnuð framvegis. Mönnum kann nú að vaxa í augum að hefta að nokkru veiðiaðferð, sem mikinn arð gefur í aðra hönd. En á það er að líta, hvílíkt tjón fjöldi manna við Eyjafjörð bíður hvert aflaleysisár, og þar af leiðandi lít eg svo á að sannarlega sé vert að gerð sé tilraun til þess að fá sem beztar líkur eða sannanir fyrir því, hvort aflaleysið stafar af hringnótaveiðunum eða ekki.
Eg skal svo ekki fjölyrða um þetta nú, en óska, að 5 manna nefnd verði skipuð í málið að umræðum loknum.