21.07.1913
Efri deild: 12. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í B-deild Alþingistíðinda. (1634)

28. mál, ábyrgðarfélög

Umboðsmaður ráðherra, Kl. Jónsson:

Háttv. þm. V.-Skaft. (S. E.) spurði mig áð því, hvort það væri ekki rjett, að eigandi verksmiðjunnar á Ísafirði hefði átt, eða ætti í málaferlum við brunabótafjelagið, er trygt hafði verksmiðjuna, og það væri af þeirri orsök, að brunabótafjelögin hefðu ekki viljað vátryggja húsin; þá skal jeg svara til þess, að þetta er mjer ekki vel kunnugt um, en jeg hygg þó, að hann eigi ekki í málaferlum við fjelögin, heldur við umboðsmann eins fjelagsins af þeim,. er trygðu verksmiðjuna. Jeg skal engan dóm á það leggja, hverjum það er að kenna, að þessi málaferli standa yfir, en þó tel jeg víst, að það sje ekki eingöngu eigandanum að kenna, heldur líka umboðsmanninum. Það gengur svo hjer, að á meðan fjeögin eru að heimta inn iðgjöldin, þá gengur alt vel, en þegar óhapp ber að höndum og einhversstaðar brennur, þá reyna sum fjelögin, að hafa í frammi vífilengjur til þess að losna við að borga. Jeg veit þetta vel af viðkynningu við fjelögin, og jeg veit, að margir háttv. þingm. í hinni h. d. muni kannast við, að það sje rjett, en úr þessu bætir frv. þetta. Þó brunabótafjelögin hefðu ekki viljað vátryggja verksmiðjuna á Ísafirði fyrir verksmiðjueigandann, þá finst mjer, að þau hefðu átt að vátryggja verksmiðjuna fyrir landsjóð, því þau eiga ekkert útistandandi við hann. Og sannleikurinn er sá, að verksmiðjan er enn óvátrygð, og verður væntanlega næstu daga, svo ef hún brennur nú, þá hefur landssjóður tapað því fje, 30,000 kr., er hann á í henni.

Sami háttv. þm. (S. E.), sagði, að það væri óþarfa hræðsla í mjer gagnvart brtillhans, og jeg hefði hleypt þeirri hræðslu í h. d., svo hún hefði frestað málinu frá laugardegi til í dag, mánudags. Jeg held að hver, sem les með athygli athugasemdir stjórnarinnar við frumvarpið, verði að játa, að þar komi fram mikil varfærni, jafnvel hræðsla í þessu efni, samanber t. d. það, sem þar stendur: „Þá er þó að áliti stjórnarráðsins mjög varhugavert að gera mjög strangar kröfur í þessu efni nú sem stendur“, og svo síðar, „búást má við, að verði krept að þeim með lögum, muni þau annaðtveggja hætta alveg starfsemi hjer, eða hækka iðgjöldin enn meir“. Í þessum ummælum kemur fram mikil varfærni, jafnvel hræðsla um það, að fjelögin hætti starfseminni, ef of langt er farið, og menn gætu hvergi fengið trygt. Menn kunna nú að svara því, að þá hefði stjórnin ekki átt að leggja frumvarpið fyrir háttv. Alþingi. En þar til er því að svara, að stjórnarráðið áleit, að með undantekningarákvæðinu í 2. gr. væri synt fyrir þetta sker, og svo mundi eitthvað hafa heyrzt, ef að stjórnin hefði ekki farið eftir ósk háttv. Neðri deildar, en hún óskaði eftir þessu frv. með því að samþykkja þingsályktun 1911, þar sem hún skoraði á stjórnina, að undirbúa málið, enda hefur stjórnin altaf haft það fyrir fasta reglu, að fara eftir óskum deildanna: Annars hygg jeg, að brtill. á þgskj. 120 bæti mjög úr þessu, og vil mæla með, að hún verði samþykt. Jeg mælti með því, að málinu væri frestað til mánudags, og gerði jeg það vegna þess, að mjer fanst það vera svo mikill vígahugur á háttv. þingm. á laugardaginn var, að þeir mundu hafa gott af að fá tækifæri til þess að íhuga málið með köldu blóði. Nú hafa þeir fengið tækifæri til þess, og málið vitanlega algerlega á þeirra valdi, enda skifti jeg mjer ekki meira af því.

En það er annað atriði, sem þó ekki snertir þetta mál beinlínis; sem jeg vildi nota tækifærið til að vekja athygli hinna háttv. þm. á, svo þeir gæti fengið tækifæri til að íhuga það.

Það, sem jeg vildi benda á, eru lög nr. 26, 20. okt. 1905, um vátrygging sveitabæja. Lög þessi hafa verið skammarlega lítið notuð, enn sem komið er. Hjer á landi er, eins og kunnugt er, um 200 hreppar, en af þeim nota ekki nema 29 hreppar lögin, og er það alt of lítið. Það eru heilar sveitir, jafnvel heilar sýslur, sem virðast ekki hafa hugmynd um, að lögin sjeu til, eða kunna ekki að notfæra sjer þau: Þannig eru sex sýslur, þar sem enginn hreppur er í fjelaginu, — það eru sýslurnar: Snæfellsnessýsla, Dalasýsla, Barðastrandasýsla, Strandasýsla, Húnavatnssýsla og Skaftafellssýsla. Aftur eru lögin notuð talsvert sumstaðar, þannig í

9 hreppum í Árnessýslu,

5 – – Borgarfjarðarsýslu og

3 – – Rangárvallasýslu.

Yfir höfuð að tala eru lögin talsvert notuð í hinu forna Suðuramti, einkum hafa Árnesingar gengið vel fram í að nota sjóðinn, og er það þeim til sóma. Samt sem áður, þótt sjóðurinn sje ekki mikið notaður, þá hefur honum safnazt talsvert fje, því hann hefur verið heppinn og fengið fáa bruna.

Æskilegt væri það, að háttv. þm. hefðu vakandi auga á þessu máli, og vildu hvetja menn til þess að ganga í hann. Jeg veit, að þar sem svo hefur verið, þá hefur það haft góð áhrif. Þannig hefur hreppur sá, þar sem háttv. þm. Ísafj. (Sig. Stef.) er búsettur, gengið í sjóðinn og eins nágrannahreppur, og tel jeg víst, að hann eigi þar mikinn þátt í, enda var þessi háttv. þingm. einn af forvígismönnum sjóðsins og hefur. altaf stutt hann.