21.07.1913
Efri deild: 12. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 170 í B-deild Alþingistíðinda. (1643)
37. mál, hagstofa Íslands
Hákon Kristoffersson:
Jeg gat þess, við 2. umr., að jeg mundi koma með brtill. við frv., en jeg fjell frá því, með því að brtill. á þgsk. 97 fer í líka átt og brtill. mín átti að fara, og jeg get vel felt mig við hana.
Jeg var ekki á móti frumv., af því að jeg teldi eigi nauðsyn á þeim skýrslum, er hagstofunni er ætlað að semja, heldur af því, að jeg er á móti stofnun nýrra embætta, nema mjög brýna nauðsyn beri til, og í öðru lagi af því, að jeg hygg, að skýrslurnar verði eins vel gerðar í stjórnarráðinu, eins og á hagstofu eða í sjerstöku herbergi úti í bæ. Og því minni þörf er á þessu, þar sem 2 hagfræðingar eru nú í stjórnarráðinu, Indriði Einarsson og Þorsteinn Þorsteinsson.
Það var minst á það við 2. umr., að skýrslurnar kæmu fljótar, ef það fyrirkomulag kæmist á, sem frumv. ætlast til. En jeg sje enga trygging fyrir, að svo verði, enda stendur aðeins í frumv., að þær skuli koma út eins fljótt og unt sje. Til þess að það gangi fljótar, yrðu skýrslusemjendur út um land að senda skýrslurnar fljótar frá sjer en tíðkazt hefur til þessa.
Þá hefur það álit komið fram í umræðunum, að 3 þús. kr. væru ekki nægileg laun handa hagstofustjóranum. Það er nú álit mitt, en það er líklega lítilsvert, þar sem jeg er í flokki þeirra manna, sem hvorki heyra nje sjá, og litið vita, að meginþorri starfsmanna þjóðfjelagsins hafi ekki svo há laun; það er hægt að víta, hvort enginn fæst til starfsins fyrir þessi laun.
Háttv. 6. kgk. þm. (G. Bj.) sagði, að sama ætti að ganga yfir alla, og það er satt. En ef þjóðin á kost á að fá hæfa menn til einhvers starfs fyrir þessa og þessa borgun, þá kemur það ekkert því við, hvort einhver fær hærra eða lægra kaup. Þjóðin segir við manninn: „Viltu vera hjá mjer með þessum og þessum skildögum og skilmálum? Viltu starfa á þjóðarbúinu fyrir þetta og þetta kaup?“ Hinn svarar þá þeirri spurningu, og ef hann vill það ekki, þá verður hann að fara.
Það getur vel verið, að fleiri álitlegir vegir sjeu til fyrir unga menn, en embættisleiðin. En það eru líka margir vegir óálitlegir, t. d. sjávarútvegurinn oft og einatt.
Háttv. umboðsm. ráðh. (Kl. J.) talaði um hvílíkur ósómi það væri, að hlaupa með ósannindi hjer inn í þingsalinn. Jeg veit að vísu ekki með vissu, við hvern hann átti, en mjer datt í hug, að hann ætti ef til vill við mig, af því að jeg sagði við 2. umr., að greitt hefði verið allt að 75 kr. fyrir örkina og það er sagt í nefndarálitinu. Jeg verð að vísa því frá mjer, að jeg hafi ekki fulla einurð við menn, þó jeg horfi framan í þá. Jeg segi skoðun mína um þá, hvort sem þeir eru við eða ekki. Og ef háttv. umboðsm. ráðh. hefur átt við mig, þar sem hann gaf í skyn, að þingmenn færi yfir sumt á hundavaði, þá hefur hann sjálfur hlaupið hjer á hundavaði.
Þar sem háttv. umboðsm. ráðh. talaði um, að ekki hefði verið goldið meira en 40 kr. fyrir örkina af skýrslunum, þá vil jeg ekki fara neinum ókvæðisorðum um það, en mjer datt í hug sagan af karlinum, sem sagði um ósannindi: en ótrúlegar þykja mjer sögur hans: „Ekki væni jeg hann sjera Jens, en ótrúlegt þykir mjer það“. Mjer telst svo til, að 1912 hafi verið goldnar rúmar 50 kr. fyrir örkina, en árið áður 67 kr.; má vera, að þetta sje skakt hjá mjer. sem jeg verð þó að halda fram að ekki sje, þá gefst háttv. umboðsm. ráðherra (Kl. J.) kostur á að leiðrjetta það.
Að endingu vil jeg taka það fram, að jeg hef bygt þetta álit mitt á skýrslu frá hinu háa stjórnarráði, er var undirskrifuð af háttv. umboðsmanni ráðherra, þar af leiðandi vænti jeg, að hinn háttv. umboðsmaður ráðh. komist á þá niðurstöðu, að jeg hafi farið með rjett mál.