21.07.1913
Efri deild: 12. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 180 í B-deild Alþingistíðinda. (1650)

37. mál, hagstofa Íslands

Björn Þorláksson:

Háttv. umboðsmaður ráðherra bar brigður á það, sem jeg sagði, að stjórnfræðisnám væri ekki þungt nám. Að vísu get jeg ekki sagt um það af eigin reynd, en jeg hef þar fyrir mjer frásögn lögfræðinga, sem þessu eru kunnugir. Hæstv. umboðsmaður ráðherra vildi bera þetta nám saman við lögfræðisnám. Nú vita allir, að lögfræðisnám er fremur Ijett borið saman við annað fræðinám við háskólann í Kaupmannahöfn, og að minsta kosti er það ekki þungt hjer við háskólann. Háttv. 6. kgk. (G. B.) sagði, að jeg hefði sagt, að fult væri af kandidötum á öllum svæðum nú. Þetta er ekki rjett eftir mjer haft. Hitt sagði jeg, að alt útlit væri fyrir, að svo mundi bráðum verða. Það hefur vafalaust aldrei komið fyrir í sögu skólans, að jafnmargir hafi útskrifazt í einu eins og í ár, og þegar litið er á nemendafjöldann í Mentaskólanum og Akureyrarskóla, þá er ekki útlit fyrir annað, en stúdentafjöldi verði mikill árlega um næstu ár fyrir það fyrsta. Jeg hygg jafnvel, að nóg muni vera af kandidötum í læknisfræði nú þegar, ef allir væru teknir, sem til eru, eins þeir sem útskrifast hafa í Kaupmannahöfn. (G. B,: Á að taka þá lögtaki). Jeg hirði ekki um að svara útúrsnúningi.

Háttv. umboðsmaður ráðherra staðfesti orð mín, að eigi væri skortur á mönnum þetta embætti, þar sem hann sagði, að hjer væru nú 3 kandídatar í stjórnfræði Jeg hygg, að það þurfi ekki að óttast, að enginn þeirra fáist í þetta embætti, hitt má telja víst, að það fá færri en vilja.