21.07.1913
Efri deild: 12. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 188 í B-deild Alþingistíðinda. (1657)

19. mál, eftirlaun handa Steingrími Thorsteinssyni

Jósef Björnsson:

Hjer hafa fallið mörg hörð orð um nefndina. H. 3. kgk. sagði, að þetta nýja frv.,sem hjer liggur fyrir, væri til hneisu fyrir deildina. Þessum orðum vil jeg harðlega mótmæla. Það væri eins hægt að segja, að með stjfrv. væri verið að fara fram á að gera Stgr. Thorsteinsson hneisu. Því að frv. mælir svo fyrir, að hann eigi aðeins að fá þessi heiðurslaun, — en í öðru orðinu eru þau nefnd eftirlaun, — ef hann segi af sjer embætti sínu. Það er því í raun og veru næsta óvíst, að Steingrímur rektor verði nokkurntíma aðnjótandi þessara tilætluðu eftirlauna eða heiðurslauna. H. 3. kgk. sagði, að þetta frv. hefði átt að ganga fljótt og hljóðalaust gegnum deildina. Jeg er honum alveg sammála um það; það hefði einmitt átt að samþykkja orðalaust heiðurslaun þessum ágætismanni til handa, sem svo mörg fögur ljóð lifa eftir á tungu þjóðarinnar, og það hefði átt að samþykkja þetta án þess að taka nokkurt tillit til þess, hvort hann segir af sjer embætti eða ekki. Sú heiðurslaunaupphæð, sem nefndin hefur stungið upp á, er nokkuð af handahófi; nefndin hefur aldrei ætlað sjer, að halda þeirri upphæð til streytu, en mun reynast fús til að hækka hana, ef brtill. þess efnis kemur fram, og er h. d. því í lófa lagið að hækka upphæðina, ef hún vill. — Það hefur margoft verið tekið fram í þessum umræðum, að Steingrímur rektor væri orðinn gamall maður, og eru því líkindi til, að hann muni ekki í mörg ár njóta eftirlauna. Þessi 1333 kr. eftirlaun, sem farið er fram á, að hann fái, verða því væntanlega aldrei að stórri upphæð, og sje það hneisa, að veita honum 4400 kr. heiðurslaun án tillits til þess, hvort hann segir af sjer embætti eða ekki, þá veit jeg ekki, hverju nafni á að nefna hin fyrirhuguðu heiðurslaun stjfrv.