10.07.1913
Neðri deild: 8. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 203 í C-deild Alþingistíðinda. (166)
43. mál, samþykktir um hringnótaveiði
Benedikt Sveinsson:
Tveir hv. síðustu ræðumenn, hafa þegar tekið fram megnið af því, sem eg vildi segja. Frumvarpið er mjög athugavert. Það er stílað gegn hagsmunum íslenzkra manna, sérstaklega þeirra, sem stunda hringnótaveiði hér við land, því að aðrir en þeir hafa ekki rétt til slíkra veiða í landhelgi.
Eg verð að taka í sama strenginn og háttv. 1. þm. S.-MúI. (J. Ó.), að þau 8 skip héðan úr Reykjavík og nokkur skip úr Eyjafirði, sem stunda þessa veiði, eru jafnframt strandgæzluskip, því að þau bægja útlendingum frá landhelginni. Ef frumvarpið verður samþykt, verður afleiðingin sú, að Íslendingar sjá sér ekki fært að halda veiðinni áfram, en útlendingarnir sýna því meiri yfirgang.
Eg held að það sé betra fyrir Eyfirðinga að sæta því, að ein 10–12 Íslenzk skip veiði í landhelgi þar úti fyrir, heldur en að eiga von á 50 útlendum skipum, sem geta vaðið um landhelgissvæðið eins og þeim sýnist. Það er öllum augljóst, að eftirlitið með útlendu skipunum er ómögulegt, ef íslenzku skipunum er bægt burtu.
Þó að eg neiti því ekki að Eyfirðingar kunni stundum að verða fyrir einhverjum búsifjum af íslenzku botnvörpungunum, sem þessa veiði stunda þar norður frá, þá er að líta á það, að þeir hafa þó talsverð not af veiðinni. Landar eru svo sanngjarnir, að þeir láta þá sæta góðum kjörum á síld, sem þeir þurfa til beitu. og það er ekki einkis virði.
Enn fremur vil eg benda á, að það er óheppilegt, að sýslunefndirnar hafi óbundnar hendur til þess að setja reglur um landhelgina, hver í sínu umdæmr. Það gæti orðið til þess, að reglurnar yrðu mismunandi í ýmsum héruðum. Og það er algerlega ótækt.
Það er ekki hægt að byggja mikið á því, hvað almenningur heldur að spilli fiskigöngunum. Hann hefir oft haldið ýmsu fram um það, sem reynsla og vísindi hafa síðar hrundið. Ef litið er á söguna er hægt að sjá, að áraskifti hafa ávalt verið að fiskigöngunum. Einn áratuginn hefir verið mokfiski á þeim stöðvum, þar sem annan áratuginn hefir ekkert óskast, öldungis eins og nú á sér etað. Og þetta hefir verið svo, löngu áður en nokkrir botnvörpungar komu til sögunnar.
Eg býst við, að heimildin verði misbrúkuð. Hún bytnar eingöngu á íslenzkum mönnum, en opnar landhelgina fyrir útlendingum. Það má nærri geta hvernig okkur gengur eftirlitið, þegar jafn rík þjóð og Englendingar lentu í vandræðum með Morayfjörðinn, er þeir bönnuðu sínum eigin skipum veiði þar. Síðan hafa útlendingar vaðið þar uppi, og Englendingum ekki tekist að hindra yfirganginn.
Eg skal ekki vera á móti því, að málið verði sett í nefnd, því að eg veit að það kemur ekki úr henni aftur. Að öðrum kosti hefði eg verið á móti því, að það hefði gengið til l. umr.