22.07.1913
Efri deild: 13. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 215 í B-deild Alþingistíðinda. (1673)

41. mál, samgöngumál

Sigurður Stefánsson, flutningsmaður:

Jeg flyt þetta mál hjer fyrir bæjarstjórn Ísafjarðarkaupstaðar; hún ætlar sjer að byggja hafnarbryggju fyrir bæinn, og telur sig þurfa að fá til þess eignarnámsheimild þá, er hjer ræðir um. Á Alþingi 1911 var samþykt samskonar frv. til handa bæjarstjórninni undir barnaskóla, er hún ætlaði þá að byggja og nú er kominn á fót, svo jeg lít svo á, að jeg þurfi ekki frekar að rökstyðja frv., fyr en þá mótmæli koma.

Jeg vona, að háttv. deild sýni frv. þessu alla velvild, og lofi því að ná fram að ganga.

Frv. vísað til 2. umr. í einu hlj.

4. Frv. til laga um löggilding verzlunarstaða í Karlseyjarvík við Reykhóla og í Hagabót í Bardastrandar-sýslu (111) ; 1. umr.