10.07.1913
Neðri deild: 8. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í C-deild Alþingistíðinda. (169)
43. mál, samþykktir um hringnótaveiði
Matthías Ólafsson:
Háttv. flutningsm. (St. St.) álítur það fullsannað, að hvalirnir séu nokkurs konar smalar, sem smali síldinni upp að landinu. En eg verð að halda því fram, að þetta sé mjög vafasamt, og meira að segja fullkomlega fráleit kenning. Eini flugufóturinn, sem er fyrir þessu, er sá, að þegar síldin er komin inn á firði, og verður þar vör við hvali, þá þýtur hún upp að landinu, af því að hún veit að hún er grunnskreiðari en þeir, og er þá hægara að ná henni í nót. Þetta er það eina. En þessi kenning er orðin svo gömul, og menn búnir að segja sjálfum sér þetta svo oft, að þeir eru farnir að trúa því. En það er um þessa kenningu, eins og einhver komst hér að orði í fyrra um heimskuna, að hún verður ekkert betri þó hún eldist. (Bjarni Jónsson: Þessi kenning er dauð í Noregi). Já, en lengi var hún lífseig þar, eins og heimskan er alstaðar.
Að hvalaveiðarnar hafi gert fiskiveiðunum skaða, er blátt áfram vitleysa. Eg hefi verið í héraði, þar sem fiskiveiðar hafa verið stundaðar jafnframt hvalaveiði Norðmanna, og hefi margra ára reynslu fyrir mér um þetta. Síld gekk engu síður í fjörðinn þá en áður.
Hér er um það að ræða, hvort á að vinna landinu í heild sinni gagn eða einstökum mönnum, og held eg að það geti ekki verið álitamál, hvort réttara er. Það má reyna að hlynna að þessum fáu mönnum á einhvern annan hátt en hér er farið fram á.
Háttv. flutningsm. (St. St.) neitar því, að bændur geti slegið sér saman og komið sér upp skipi til hringnótaveiða. En það geta þeir hæglga. Það er ekki svo dýrt að það sé ekki vel kleift. Menn leggja oft meiri kostnað í lagnet, heldur en þeir þyrftu að gera til þess að koma sér upp einu skipi til hringnótaveiða margir saman. Og hvað sem því líður, er það gersamlega fráleit kenning, að menn eigi að hlynna að gömlum og úreltum aðferðum á kostnað nýrri og betri aðferða.
Það er ekki hægt að sjá, að menn hafi nokkurn tíma fiskað svo mikið, að ekki hafi verið hægt að hagnýta aflann.
Eg álít það alt af varhugavert að hefta nýjan atvinnuveg með nýjum tækjum að eins til þess að halda í gömlu tækin. Samt sem áður álít eg rétt, að láta málið fara í nefnd; það er ýmislegt fleira að athuga við þetta, sem getur skýrst í nefndinni.
En það eru margir, sem slík lög gætu gert mein. Akureyringar stunda talsvert hringnótaveiðar á þilskipum og leggja aflann upp á Akureyri. Við það hefir fjöldi fólks atvinnu, bæði börn og gamalmenni, sem ef til vill gætu lítið eða ekkert haft að gera annars. Allri þessari vinnu verður svo fólkið svift, ef veiðin legst niður. Þetta þykir mér varhugavert.