22.07.1913
Efri deild: 14. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 241 í B-deild Alþingistíðinda. (1692)

64. mál, friðun æðarfugla

Steingrímur Jónsson:

Jeg get að vísu átt von á því, að háttv. þm. Ísf. (S. St.) rísi nú upp, og segi, að hjer komi nýtt hrúgald af vitleysum eins og hann sagði við háttv. 6. kgk. þm. (G. Bj.). En þótt jeg eigi von á þessu, þá get jeg ekki stilt mig um að segja nokkur orð um frumvarpið, enda þótt jeg verði að játa jafnframt, að mig vanti sjerþekkingu í þessu máli.

Jeg ætla mjer ekki, að blanda mjer í deilurnar um það, hvort æðarfuglinn er monogam eða polygam“. En í sambandi við það vildi jeg taka það fram, að jeg þekki góða varpmenn, er hafa stækkað varp sitt úr innan við 20 pd. æðardúns upp í 100 pd., en segja, að þeir óttist, að blikinn geti orðið allt of mikill í vörpunum, og er þá mjög vafasamt. hvort rjett er að friða hann eins stranglega og æðurina.

Það, sem gerir, að jeg er ekki ánægður með þetta frumv., er fyrst og fremst sektarákvæðin.

Fyrstu ákvæði um verndun æðarvarps anunu hafa verið gerð með konungsúrskurði um 1784 og 1785 (Sig Stet. 1787); nei háttv. 1. kgk. þm. (Júl. Hav.) hefur bent mjer á konungsúrskurð um það frá 19. apríl 1784, og síðan aftur ítrekun í konungsúrskurði frá 22 júní 1785. Með verzlunartilskipuninni 1787 er fyrst bannað að drepa æðarfugl og lögð við 48 sk. sekt. Samkv. veiðitilskipuninni frá 1849 er sektin einnig 48 sk., en loks 1890 hækkaði sektin um 10 krónur.

Jeg hef varla þekt nokkurn varpeiganda, og það eru um 20 varplönd í Þingeyarsýslu, sem ekki lítur svo á, að sektirnar sjeu alt of háar, svo háar, að það sjeu vandkvæði á að beita þeim. Venjulega eru það fátæklingar, sem brjóta lögin, og er þá mjög erfitt, að beita þessum ströngu sektarákvæðum.

Hvað er þá að segja um sektarákvæðin í þessu frumv. Hjer eru lægstu sektir fyrir að skjóta einn æðarfugl 50 krónur, fyrir að skjóta 2 æðarfugla 100 krónur, fyrir 4 æðarfugla 200 kr. o. s. frv., og mjer er sagt, að í einu skoti sje vel hægt að drepa 4–5 æðarfugla, jafnvel fleiri. Hvernig er svo um 200 kr. sekt í framkvæmdinni, ef einhver er svo heppinn að skjóta 4 æðarfugla í einu skoti og fær sekt fyrir. Þeir, sem skjóta æðarfuglinn, eru yfirleitt engir auðmenn, heldur efnalitlir og fátækir menn, og fyrir þá er 200 króna sekt sama sem 50 daga fangelsi á almennan fangakost. Segjum svo, að einhverjum hafi verið hegnt tvisvar fyrir lítilfjörleg brot gegn lögum þessum, og að hann skjóti svo eitt skot og hæfi 5 kollur í því skoti; það er þá sama sem 1000 kr. sekt eða 7 mánaða fangelsi. Það þarf ekki svo mikið eftir lögum þessum til þess að fá lífstíðar fangelsi, það er ef jeg man rjett, eitthvað nálægt 20,000 kr. sekt. Sektarákvæði þessi eru svipuð, eins og það væri skipað í hegningarlögunum, að hengja alla þjófa, og eins þá, sem eftir núverandi lögum er farið vægast með, þá er stela sjer til bjargar og eta það á staðnum. Allir sjá, að það væri svo ranglátt, að því hegningarákvæði yrði alls eigi beitt. Jeg segi þetta ekki í spaugi heldur í alvöru, því jeg held, að þessar háu sektir yrðu til þess að þeim yrði aldrei beitt.

Þá er ákvæðið um að banna, að hirða dauðan æðarfugl. Jeg hef aldrei getað fallizt á, að það væri heppilegt; þó getur verið, að á sínum tíma hafi það hjálpað til þess að útrýma netaveiðinni. En það er áreiðanlegt, að það er á móti rjettarmeðvitund allra manna, og á móti grundvelli allra laga. Það er bein misþyrming á rjettarmeðvitund manna, að menn megi ekki hirða dauðan æðarfugl, sem þeir finna í landi sínu, því auk þess, sem fuglinn sjálfur er oft einhvers virði, þá er dúnninn af honurn það nærfelt altaf, Jeg álít því, að hið allra lengsta, sem lögin gætu gengið í þessu efni, væri að sekta manninn, ef að hann gæti ekki sannað, að hann hefði ekki drepið fuglinn.

Í 5. gr. frv. er, að minni hyggju, gerð athugaverð breyting á tilsvarandi ákvæðum veiðitilskipunarinnar frá 1849. Hjer er gerður upptækur allur veiðirjettur í nágrannalöndum í vissri fjarlægð, og þetta er gert hjer án allra bóta. Þetta er mjög athugavert ákvæði, eigi svo mjög vegna fuglaveiðisrjettar, því hann er víðast ekki mikils virði, heldur vegna þess, að það er ruddaleg misþyrming á rjetti manna, að þingið setji þannig löguð lög, þannig, að sá, er fyrir órjettinum verður, hafi engin ráð til þess, að geta fengið hann endurbættan.

Við 6. gr. er ekki gerð stór breyting frá hlutaðeigandi ákvæðum veiðitilskipunarinnar frá 1849, en þó er fjarlægðarbilið fært þar úr 240 föðmum í um 267 faðma. En þessi breyting er athugaverð vegna þess, að hjer mætast tveir atvinnuvegir, nefnilega æðarfuglsrækt og hrognkelsaveiðar. Og jeg veit það, að það eru margir, er stunda hrognkelsaveiðar, sem segja, að æðarfuglinn eyðileggi og spilli mjög mikið fyrir þeirri veiði. Jeg skal engan dóm á það leggja, hvort það sje rjett eða ekki, því mig vantar þar alla sjerþekkingu, en sje það rjett, sem þeir segja, þá eigum við að segja: „Niður með æðarfuglinn !“ Og við segjum það þá með fullkomnum rjetti, því hrognkelsaveiðin er mjög mikilsverður bjargræðisvegur, en æðarfuglsræktin er sjerstaklega gróðavegur.

Ef því þetta ákvæði úr veiðitilskipuninni frá 1849 er lekið upp, þá álit jeg ekki nema rjett, að það sje því aðeins gert, að þeir, er fyrir því verða, fái endurgjald fyrir veiði þá, er þeir missa, því þessi veiði er mjög þýðingarmikil fyrirhverja bygð, sem hún er í.

Um ákvæði 9. gr. er það að segja, að mjer í þykir undarlegt, að nefndin skyldi ekki taka þar upp óbreytt ákvæði veiðitilskipunarinnar.

Mjer þykir það undarlegt, að menn geta friðlýst varpi, þar sem engin æðarkolla er, og jeg í tel það víst, að þó það yrði gert, að þá yrði því ekki hlýtt. Jeg tel sjálfsagt, að til þess að geta friðlýst nýju væntanlegu varplandi, þá yrði sá, er það vildi gera, að fá lýsingu skynbærra manna í sveitinni um, að á þeim stað gæti orðið varpland Og það ætti ekki að vera nein hætta á því, að setja það ákvæði inn í lögin, því allir munu vilja hafa æðarvarp í sveitinni, sje þess nokkur kostur.

Þá er sagt í þessari sömu grein, að sá, er vill koma á fót æðarvarpi, eigi að skrifa um það sýslumanni, en það er ekkert tekið fram um það, hvernig hann eigi að skrifa honum. Jeg geri nú ráð fyrir, að umsækjandinn skrifi sýslumanni. og að sýslumaður þinglýsi þessu „skrifi“, sem sjálfsagt er. En hvað er þá friðað? Öll landareignin eða hvað? Og hvernig eiga aðrir að hegða sjer eftir þessu? Þetta er alveg ómögulegt ákvæði.

Mjer finst það vera alveg sjálfsagt, að sá, sem vill fá nýtt varpland friðlýst, riti um það sýslumanni, og láti þar með fylgja skjal, þar sem varplandinu er nákvæmlega lýst, legu þess og annað, er að því og ummerkjum þess lítur, og að þetta skjal þinglesi sýslumaður síðan gegn þinglestursgjaldi, tveim krónum. Minna má það ekki vera, og þá getur sýslumaður lýst því ásamt öðrum varplöndum á manntalsþingum.

Viðvíkjandi 10. grein vildi jeg vekja athygli á því, að hjer er um talsverðan kostnað að ræða, að láta þýða lögin á ensku, þýzku og frönsku og jafnvel fleiri mál, og síðan prenta þau, Þetta er vitanlega vel framkvæmanlegt, en það er gert fyrir tiltölulega fáa menn meðal þjóðarinnar, sem sje varpeigendur, og það er því ekki nema rjett, að þeir greiði þann kostnað.

Æðarvarpeigendurnir ættu, að því er mjer finst, að greiða hátt útflutningsgjald af æðardúninum, vegna þeirrar miklu verndar, sem Iögin veita þeim.

Hef jeg þá gert grein fyrir því, hversvegna jeg ekki greiði atkvæði með frumv. Þá eru breytingatillögurnar á þgskj. 141. Jeg mun greiða atkvæði með þeim, ekki af því, að jeg sje með þeim öllum eða ánægður með þær allar, heldur af því, að jeg er ánægðari með þær en frumvarpið. þó greiði jeg þar atkvæði móti 2. tillögunni.

Í sambandi við þetta, vil jeg vekja athygli á því, hvort það sje rjett, að banna að selja æðaregg, því eftir því, er háttv. 6. kgk. þm. (G. B,) hefur reiknað út, og jeg efa ekki, að það sje rjett, þá er þetta 60,000 kr. skattur á varpeigendurna.

En ef varpeigendurnir óska þess sjálfir, þá ættum við ekki að vera að finna að því.

Jeg fyrir mitt leyti óska, að um eggin sjeu látin halda sjer ákvæðin í lögunum frá 1890 óbreytt.