04.07.1913
Neðri deild: 3. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í C-deild Alþingistíðinda. (17)

3. mál, fjáraukalög 1912 og 1913

Ráðherrann (H. H.):

Í þessu frv. er farið fram á að bætt sé við gjöldin, sem talin eru í fjárlögunum fyrir árin 1912–1913, 135.891.26 kr. Þrátt fyrir þessa upphæð er helzt í von, að ekki þurfi að Verða tekjuhalli í landsreikningnum fyrir yfiratandandi fjárhagstímabil, eina og grein er gerð fyrir í athugasemdum við frv. heldur dálítill afgangur. Útgjaldaupphæðirnar sumar eru þó talsvert stórar og er það meðfram gert til þess að létta á fjárlögunum fyrir 1914 og 1915.

Vil eg sérstaklega nefna það sem ætlað er til viðbótarbyggingar við pósthúsið, 65000 kr. Á þessari bygging er in mesta nauðsyn, því að það er orðið ókleift að fá rúm bæði fyrir póst og síma í húsi, því sem báðar þessar stofnanir nú hafa hér í Reykjavík. Sömuleiðis er lagt til áframhaldsbyggingar á Reykjadalsbrautinni 10.000 kr. eftir óskum Þingeyinga. Ástæðurnar tilfærðar í athugasemdum við frv , og leyfi eg mér að vísa háttv. þingm. til þeirra.

Enn fremur er hér farið fram á fjárveitingu til nauðsynlegra aðgerða og endurbóta á húsum gagnfræðaskólans á Akureyri og bændaskólans á Hólum, og er glögglega gerð grein fyrir því í athugasemdunum.

Þingið hefir áður heitið 10,000 kr. til að mæla innsiglingu á Gilsfjörð, en með því að sú fjárveiting var þá ekki notuð, er hér farið fram á endurveiting á sömu upphæð á ný.

Eg skal svo ekki fara fleiri orðum um frv., en vona að háttv. fjárlagan. greiði sem bezt fyrir þessum fjárveitingum.