24.07.1913
Efri deild: 15. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í B-deild Alþingistíðinda. (1715)

19. mál, eftirlaun handa Steingrími Thorsteinssyni

Umboðsmaður ráðherra (Kl. J.):

Jeg gat þess við síðustu umæðu, að það væri samkvæmt ósk og vilja Steingríms rektors Thorsteinssons, að frumv. þetta er komið. fram. Gat jeg þess þá, að stjórnarráðinu hefði borizt brjef frá honum um málið. Þá hafði jeg brjefið ekki við hendina, en nú er það hjer, og skal jeg, með leyfi háttv. forseta lesa upp þann kafla þess, sem hjer skiftir máli, og er hann þannig:

Hjer með leyfi jeg mjer að gefa hinu háa stjórnarráði til vitundar, að jeg hef í hyggju að segja af mjer rektorsembættinu fyrir næsta haust, ef alþingi á næstkomandi sumri vildi veita samþykki sitt til, að jeg megi fara frá með fullum launum, þeim sem nú eru“. Þetta hygg jeg að sýni, að frumv. er komið fram eftir ósk Steingríms rektors Thorsteinssons, eins og jeg sagði síðast. Háttv. þm. Vsk. (S. Egg.) þótti um daginn við 2. umr., þessi leið ekki heppileg, en vildi heldur, að eftirlaunaviðbótin hefði komið fram á fjárlögunum. Stjórnin athugaði þetta atriði, einkum vegna þess, að sú leið virðist að nokkru hafa vakað fyrir skáldinu Stgr. Thorsteinsson; að þetta væri gert með því að taka það upp á fjárlögin, því hann segir svo síðast í brjefi sínu:

„Eftir framansögðu eru það þá tilmæli mín, að hið háa stjórnarráð vildi taka þetta erindi mitt til íhugunar og góðfúslega greiða fyrir því, að leggja það fyrir alþingi á næstu fjárlögum“.

Þessa leið tók stjórnin til íhugunar, en hún leit svo á, að með því væri þessum heiðursmanni ekki sýnd næg viðurkenning, að setja þessa upphæð í fjárlögin. Stjórninni þótti það miklu fallegra form að fara þessa leið, og fanst, að þessi umsækjandi ætti það fullkomlega skilið.

Stjórnin bygði þetta einnig að nokkru á ummælum umsækjanda í skjali hans, sem eru svo:

„Það, sem jeg því fer fram á umfram lögmælt eftirlaun, væri því næst að skoða sem bókmentalegan styrk og viðurkenningarvott um viðleitni mína í því það sem af er æfinnar — að leggja fram minn skerf til íslenzkra bókmenta“.

Það er einmitt þetta, sem stjórnin vildi sýna, og vænti jeg því þess, að þessar umræður dragist ekki úr hófi fram hjer í háttv. deild, en að þessi ummæli skáldsins mættn vera síðasta orðið í málinu.