30.07.1913
Efri deild: 19. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 312 í B-deild Alþingistíðinda. (1752)

64. mál, friðun æðarfugla

Einar Jónsson:

Jeg er samþykkur stefnu frv., því jeg er einn af þeim, sem vil vernda og efla þennan atvinnuveg sem mest. Jeg viðurkenni líka, að ákvæðið um takmörkun eggjatökunnar sje í sjálfu sjer rjett; því að fyr fáum vjer ekki fulla reynslu fyrir því, hvað þessi atvinnuvegur getur aukizt en eggjunum er hlíft. Það liggur í augum uppi, að því fleiri ungar, sem úr eggjum koma, því meiri líkindi eru fyrir fjölgun fuglsins, og því meira til fyrir vanhöldum. Jeg er því í sjálfu sjer meðmæltur sem mestri eggjafriðun, þó að mjer þyki frv. fara fulllangt. Aftur þyki mjer brtill. á þgkj. 196 fara of skamt, því að ef hún er samþykt, geta varpeigendur eftir sem áður tekið æðaregg, alveg eins og nú á sjer stað. Þessvegna hef jeg komið með viðaukatillögu við hana, ef hún kynni að verða samþykt.

Að vísu má segja, að hver varpeigandi ætti að sjá svo hag sinn, að hann hagaði eggjatökunni eftir því, sem hann áliti heppilegast fyrir efling varpsins, og ljeti alveg vera að taka egg, ef hann teldi það hollast varpinu, og væri gott, ef þetta yrði með sanni sagt um alla; en það vitum vjer, að menn eru mishagsýnir og misframsýnir. Stundarhagurinn ræður of miklu hjá svo mörgum. Jeg þekki dæmi þess, að varp getur vaxið mikið, þó að talsvert sje tekið af eggjum og einnig minkað, þó að lítið sje tekið af þeim. En fleira getur valdið því, hvort varp vex eða minkar, en það, hvort mikið eða lítið er tekið af eggjunum, og verður því ekki með vissu sagt á hverjum stað, hver orsökin er til þess, að varp vex eða minkar.

Jeg ætla svo að minnast nokkuð á brtill. mína; hún er bygð á reynslu, sem fengizt hefur við varp það, sem jeg hef nú umráð yfir, þó ekki á eigin reynslu minni; hún er of stutt til þess, heldur af reynslu manns þess, sem þar hafði umsjón með varpinu síðustu 8 ár. Þegar hann tók við varpinu, varð hann þess brátt var, að eftir hafrót og brim á haustum, lágu æðarungarnir dauðir hópum saman í fjörunni. Hann áleit því, að það mundi miklu skifta, að ungarnir gætu orðið sem elztir og öflugastir fyrir haustið; þá mundu þeir geta betur staðizt sjórótið. Þegar hann hafði hirt varpið í 3 ár, tók hann því upp þá reglu, að taka ekkert egg fyrsta mánuð varptímans, nema svonefnd „kaldegg“, en tók síðan öll þau egg, sem eftir það voru orpin. Afleiðingin af þessu var sú, að ungarnir fóru hjer um bil jafngamlir úr varpinu, og að engir voru þeir mjög ungir, þegar haustaði; og svo brá við, að síðan fann hann örsjaldan brimdauða æðarunga í fjörunni á haustum. Þegar hann tók við varpinu, var dúntekjan um 100 pd. á ári, en jókst síðan í 4 ár um 10 pund á ári, og í fyrra um 6 pd. Þessi hefur nú reynslan verið á þessum stað. Þegar maður þessi byrjaði að taka eggin, hafði hann merkt öll þau egg, er þá voru orpin og voru þá mjög víða 6 egg í hreiðri. Þegar hann nú tók nýorpin egg, ljet hann eldri egg í staðinn, og tók sú æður þau að sjer, sem var að verpa, og ungaði þeim út. Þau egg, sem hún sjálf varp, tók hann jafnóðum. Bar ekki á, að þessi flutningur gerði neitt til. Það var mjög lítið af ónýtum eggjum eftir í hreiðrunum við varplokin. Við þetta varð allur unginn hjer um bil jafngamall og alt að mánuði eldri, en margt af ungunum mundi hafa orðið, ef alt af hefði verið tekið eitthvað af eggjum úr hverju hreiðri allan varptímann, eins og tíðast er. Þess vegna hlaut hann að vera betur undir það búinn að standast haustbrimin. En þetta hlaut einnig að hafa góð áhrif á fuglinn, sem síðast varp; hann tók auðvitað minna að sjer og megraðist minna, þá er ásetutíminn styttist fyrir honum. Því eins og kunnugt er, tekur kollan ekki fæðu meðan hún situr á. Þessi fugl var því betur undir búinn, til að taka á móti hausthretunum og standast þau. Það virtist því, að þannig löguð eggjataka yrði til að tryggja bæði líf unganna og fullorðna fuglsins. Og reynslan varð sú, sem jeg sagði, að varpið jókst til muna, þó að það auðvitað einnig geti komið til af öðrum orsökum.

Jeg veit, að það má segja, að hægt sje að fara í kringum ákvæði þessarar brtill., og að hún styrki ekki mikið eftirlit með eggjatöku; en þó verð jeg að ætla, að svo framarlega sem brtill. á þgskj. 196 er samþykt, þá muni það vera til bóta, að samþykkja líka viðaukatill. mína við hana.

En þó að fara megi ýmislega kringum ákvæði brtill., þá ætti hún að geta verið gagnleg bending, sem varpeigendur gætu tekið til greina, ef þeir vildu, og jeg tel það þess vert, því það hefur reynzt vel í þessum stað, sem jeg hef nefnt. Það hefur reynzt svo í 2 varplöndum, sem jeg þekki eystra, að fuglinn verpir mikið í kringum 20. júní, og er það kallað þar Jónsmessuvarp. Fuglinn byrjar venjul. að verpa um miðjan maí, en síðar verður aftur mikið um varp um 20. júni. Jeg veit sem sagt, að síðan þessi regla var tekin upp með eggjatökuna í því varpi, sem jeg hef nefnt, þá hefur varpið vaxið, og miklu færri æðarungar hafa á haustin dáið í haustbrimunum, enda eðlilegt, að ungu ungarnir sæti þá mestu afföllunum. Mjer er ekki kappsmál um þessa brtill., en jeg tel rjett að samþykkja hana, þó ekki sje nema til bendingar fyrir varpmenn.

Það hafa verið skiftar skoðanir um 5. breytingartillöguna á þingskj. 174, en jeg held, að jeg fyrir mitt leyti verði samt með henni, því þegar lögin verða kunnug, þá veit hver maður, að það varðar sektum, að hirða dauðan æðarfugl, nema að hann geti sannað, að fuglinn hafi verið dauður, er hann tók hann. Ef finnandinn því sjer, að hann geti ekki fært sönnur á það, þá lætur hann dauða fuglinn liggja kyrran. Jeg get ekki sjeð, að nein hætta geti stafað af því, þó að þetta verði samþykt. Og þeim mun síður finn jeg ástæðu til þess að vera á móti, þar sem lögfræðingunum kemur ekki saman um það, hvort það sje ósæmilegt frá löggjafarvaldsins hálfu að setja inn slík ákvæði.

Jeg er samþykkur þeim, er vilja leyfa þeim, er finnur dauðan æðarfugl, að notfæra sjer hann, og mjer finst vera ilt að banna það, sjerstaklega, þegar svo vill til, að mikið finst dautt af honum fyrir ísalögum, eins og stundum á sjer stað, því fuglinn er altaf einhvers virði, að minsta kosti fiðrið.