30.07.1913
Efri deild: 19. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 315 í B-deild Alþingistíðinda. (1753)
64. mál, friðun æðarfugla
Jósef Björnsson:
Háttv. 6, kgk. þm. (G. Bj.) dróg það í töluverðan efa, að friðunarlögin hefðu, að því er snertir fjölgun æðarvarpa og æðarfugla, komið að notum. Ekki skal jeg þrátta um það við hinn háttv. 6. kgk. þm. (G. Bj.) en jeg vil benda honum á ummæli háttv. þm. Ísaf. (Sig. St.) um, hvað æðarvðrpin hafi vaxið við Ísafjörð. Í byrjun 19. aldar var varpið 2 pd. í Æðey af æðardún, en nú er það um 400 pd.; þá var varpið í Vigur 30 pd., en er nú 130 pd., og á líkt má benda á fleiri stöðum, auk þess er ný æðarvörp hafa komið á fleiri stöðum. Það nær því engri átt, að vörpin hafi ekki vaxið, (Gudmundur Björnsson: Dúnninn). — Já, þótt dúntekjan hafi ekki vaxið til muna allra síðustu árin, þá hrindir það ekki þeirri sannreynd, að vörpin og þar með dúntekjan hafi vaxið, eftir að farið var að friða æðarfuglinn, enda kemur þar til greina, að fuglinn á í baráttu við ýmsa varga, eins og tekið hefir verið fram áður, — auk mannanna, er myrða hann þrátt fyrir lögin.
Háttv. 6. kgk. þm. (G. B.) vjek að því, hvort lífsskilyrði væru hjer á landi til þess að æðarfuglinum gæti fjölgað, og benti hann þar til þess grundvallarlögmáls, sem hver einstök dýrategund er bundin við í náttúrunni. Það er vitanlega alveg rjett, að tegundirnar hljóta altaf að vera bundnar við þessi grundvallarlög. En þegar þetta er heimfært á æðarfuglinn, þá er tvent, er þyrfti að taka hjer til greina og rannsaka ýtarlega, ef hægt ætti að vera að dæma um það, og jeg held, að hvorki háttv. deild geti það, nje einhverjir menn milli þinga, eins og háttv. 6. kgk. þm. (G. B.) vildi halda fram, því slík viðfangsefni eru svo margþætt og flókin, að ekki tekst að rekja þau til hlítar, þótt glöggir og víðsýnir vísindamenn hafi þau með höndum. Þetta er ljóst, ef til þess er litið, hvað ransaka þyrfti, en það er bæði um fæðu fuglsins og önnur lífsskilyrði.
Hefur æðarfuglinn nægilega fæðu? Það þarf í fyrsta lagi að rannsaka, því eins og auðvitað er, þá getur honum ekki fjölgað, nema því aðeins, að hann hafi nóga fæðu. En jeg er vantrúaður á það, að þessi rannsókn geti farið fram, og allra sízt svo ýtarleg, að hún geti sannað, hvort æðarfuglinn hefur nóga fæðu eða ekki. Jeg hlýt að halda því fram, og tel það sennilegt, að hann geti haft nóga fæðu við strendur landsins og í kring um landið, og svo er líka á það að líta, að æðarfuglinum er ekki svo markaður bás, að hann geti ekki leitað víðar að fæðu en við strendur landsins.
Í öðru lagi þyrfti að fá upplýsingar um óvini æðarfuglsins; því þeim mun skæðari, sem þeir eru, þeim mun hættulegri eru þeir fyrir fuglinn og hindra fjólgun hans, hvað sem fæðunni líður. Koma hjer bæði til greina óhagstæð náttúruskilyrði, sem gera baráttu hans fyrir lífinu erfiða, og beinir óvinir. Eins og háttv. 6. kgk. þm. (G. B.) benti á, þá á hann að óvinum allskonar varga, auk mannanna, sem auk þess er þeir drepa hinn fleyga fugl, drepa líka hinn ófædda með eggjatöku sinni. Væri hægt að fækka vörgunum og friða alveg æðarfuglinn fyrir öllum óvinum hans, þá liggur í hlutarins eðli samkvæmt náttúrulögmálinu, að tegundinni fjölgaði að því marki, sem fæðan setti fjölguninni.
Með meiri friðun á æðarfuglinum eru því miklar líkur til, að æðarvörp fjölgi hjer á landi.
Háttv. 2. þm. N. Múl. (E. J.) vildi ekki láta taka nein egg fyrst framan af varptímanum,. og sagði, að það hefði gefizt vel eystra. Jeg fyrir mitt leyti efast ekki um, að það geti verið rjett, en jeg lít svo á, að það sje allmikill vandi, að taka egg, ef þau eigi að geta ungazt út, og flytja þau á milli hreiðra. Hitt, er þingmaðurinn (E. J.) sagði, að ungum, sem eigi ungast út fyr en nokkuð er áliðið sumars, sje meiri hætta búin í haustbrimum, tel jeg mjög sennilegt. Og með því að taka eng in egg framan af varptímanum nema kaldegg, er þeim eggjum fjölgað, sem vænta má að hraustir ungar komi úr. Þetta stefnir því í líka átt og að banna eggjatöku, en jeg hygg, að eggjatakan sje einn versti óvinurinn, er æðarfuglinn á við að stríða.