31.07.1913
Efri deild: 20. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 369 í B-deild Alþingistíðinda. (1787)
26. mál, sparisjóðir
Þórarinn Jónsson, framsm.:
Jeg get sparað mjer orð um þetta frumvarp. Nefndarálitið ber með sjer breytingar þær, sem nefndin vill koma með, og eru margar þeirra aðeins orðabreytingar. Jeg get búizt við, að mál þetta verði mikið rætt. Þar sem það snertir alla landsmenn svo mjög. Gæti jeg jafnvel trúað, að mönnum fyndist, að nefndin hefði ekki bætt alt, sem hefði þurft að bæta, en jeg geymi mjer að tala um það, þangað til að þeim aðfinslum kemur.
Það er lauslega tekið fram í nefndarálitinu, að sparisjóðir hjer á landi hafi stórum stækkað hin síðari ár. Þó eru ekki taldir með nema sparisjóður bankans, söfnunarsjóður og sveitasparisjóðir, sem njóta verndar samkvæmt tilskipun um hlunnindi nokkur fyrir sparisjóði á Íslandi frá 5. jan. 1874. En þar fyrir utan eru margir sjóðir, sem ekki eru nefndir í skýrslu um sparisjóði árið 1910. En sveitasparisjóðir, sem hlunnindi hafa, hafa nú í innlagsfje í um 1 milj. 198 þús. kr.
Eins og peningasakir standa nú hjá oss, þá eru sparisjóðir þær einu lindir, sem alþýða manna nær peningum úr. Þessvegna skiftir það afarmiklu, að eftirlit við sjóðina sje eins grandgæfilegt og gott, sem framast er auðið, svo ekkert geti komið fyrir, sem rýrt geti álit þeirra og fælt menn frá að leggja fje sitt inn í þá, eða að er eitt verði að ná peningum útúr þeim. Það þyrfti ekki nema, að illa færi fyrir einum sparisjóði, til þess að hræðsla gripi menn og mundi slíkt valda miklu óhagræði. Þetta hefur stjórnin sjeð, og því hefur hún komið fram með frumvarp þetta, svo settar verði skorður við þessu í tíma, og sjóðirnir trygðir sem bezt. Jeg skal svo ekki að óþörfu fyrirfram lengja meira umræðurnar.