31.07.1913
Efri deild: 20. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 370 í B-deild Alþingistíðinda. (1788)

26. mál, sparisjóðir

Jón Jónatansson:

Þegar þetta frumvarp var hjer til 1. umr., hafði jeg lítið athugað það, en hef nú kynt mjer málið betur og blandast mjer ekki hugur um, að hjer sje um mjög athugavert mál að ræða. Jeg er samþykkur því, sem háttv. hamsögumaður sagði, að sparisjóðirnir sjeu aðallega peningalindir þeirra, sem á smærri lánum þurfa að halda í svip.

Jeg er fyllilega samdóma nefndinni um það, að tilgangurinn með frumvarpi þessa sje góður, og að þörf sje að tryggja innistæðufje manna í sparisjóðum sem bezt. En þess ber að gæta, að þetta mál grípur mjög inn í viðskiftalífið, og því er það hið mesta vandamál. Það er ekki nóg að líta til annara landa og fara eftir því, sem þar tíðkast um sparisjóði. Nei, menn verða, áður en nokkuð er gert, að þekkja viðskiftaástandið hjer, því að er mjög aðgæzluvert að gera nokkuð það, er geti heft viðskiftalífið. Þessvegna þarf þetta mál mikillar rannsóknar, og er þá ekki nóg að vita innstæðueignina, heldur þurfa menn einnig að þekkja starfsemi sparisjóðanna og þýðingu þeirra fyrir viðskiftalífið. Snöggar breytingar á þessu sviði þarf að varast. Jeg þykist vita, að háttv. deildarmenn telji nauðsynlegt, að vanda allan undirbúning þessa máls og að þeir vilji finna sem bezta undirstöðu, en til þess þarf nákvæma þekkingu á sparisjóðum og starfsemi þeirra hvers um sig, og á þeirri reynslu eiga lög um sparisjóði að byggjast. En á þessu sviði, er svo mjög snertir viðskiftalíf manna, verður að fara varlega. Lög, sem koma óvænt og alt í einu, en hafa víðtæk og snögg áhrif, eru næsta varhugaverð, og geta valdið mestu vandræðum. Ef hrapað er að að samþykkja slík lög sem þessi, þá getur það haft illar afleiðingar í för með sjer, einkum fyrir hina efnaminni viðskiftamenn sjóðanna, ef heft yrði útlánsstarfsemi sú, sem þeim er mest til nota. En hjer er auðvitað vandasamt að finna rjett takmörk.

Þegar frumvarp þetta var til 2. umr., hafði jeg ekki kynt mjer það, eins og jeg tók áðan fram, en þóttist þó verða þess var, að það væri að ýmsu leyti varhugavert. Vonaðist jeg eftir, að nefndin mundi laga frumvarpið, og það hefur hún að vísu gert. Allar breytingartillögur nefndarinnar eru til bóta, og jeg get reyndar verið með þeim öllum. En mjer þykir hún hafa gengið of skamt. Vil sjerstaklega vekja athygli á, að hún hefur ekki gengið nógu langt með að rýmka þau ákvæði, sem voru of þröng, og mjer þykir stærstu og varhugaverðustu gallarnir á frumvarpinu í 13. gr. um takmörkun sjálfsskuldarábyrgðarlána. Það er fjærri mjer, að jeg vilji gerast talsmaður fjárhættu eða annars bralls, en jeg held, að þessi lán sjeu ekki hættulegri en önnur lán, svo að ástæða sje til að kippa að sjer hendinni um þau og fara. að setja svo þröng takmörk fyrir, hvað mikið megi lána af þeim. Það er vísu satt, að þessi lánsaðferð hefur verið misbrúkuð eins og fleiri, en menn hafa lært af því og orðið varfærnari. Nú mun það vera orðinn siður að ábyrgðarmenn taki baktryggingu hjá lántaka. Þessi lán eru ekki nærri því eins hættuleg fyrir sparisjóðina, eins og landstjórnin álítur. Kunnugleika sparisjóðsstjórnanna á högum lántakenda og ábyrgðarmanna er það að þakka, að sjálfskuldarábyrgðarlán eru ekki lakari en sum fasteignalánin, að jeg ekki tali um lán gegn veði í húsum. Margir nota þessa aðferð, er þeir þurfa á lánum að halda um stuttan tíma, og tel jeg varhugavert að hefta þau, einkum þar sem hagur bankanna er ekki betri en hann er, að menn fá þar ekki slík lán, sízt utan Reykjavíkur.

Jeg skal leyfa mjer að nefna dæmi um þessa lánsstarfsemi, sem jeg þekki vel til, Það er sparisjóður Arnessýslu. Innstæðufje hans er um 2/5 af innstæðufje allra. hinna sjóðanna (utan Reykjavíkur). Sparisjóður þessi er nú 25 ára gamall, og hef ur hann mikið greitt fyrir viðskiftum á sínu svæði, einkum þó hin síðari ár. Sjávarútvegurinn um þær slóðir hefur breyzt úr færa- og lóðaveiði í netveiði. Þetta hefur haft geysimikinn kostnað í för með sjer. En haganlegast að kaupa efni þannig, að borga það út í hönd. Menn hafa því orðið að taka lán á haustin til efniskaupa, og sparisjóðurinn þá hlaupið undir bagga. Lánið vanalega tekið að haustinu, og borgað af óskiftum afla í lok vertíðar, því netin eru eign skipverja. Ef þessi lánsaðferð yrði hindruð, væri illa komið hag þessara manna, er hafa haft mikil not af lánunum.

En það eru ekki sjómennirnir einir, sem þurfa að leita til sparisjóðsins. Það getur komið sjer vel fyrir bændur líka, t. d. þá, er gert hafa mikil kaup á efni til girðinga, þurfa þeir þá stundum á smáláni að halda til húsabygginga, eða þegar gjalddagi kaupfjelaganna er í nánd, til þess að borga skuldir upp við kaupfélögin á rjettum gjalddaga og geta orðið aðnjótandi verzlunarágóða, er fjelögin greiða þeim, sem standa í skilum. Selja þeir þá sparisjóðnum víxla, er þeir svo innleysa að vorinu, þegar þeir geta selt afurðir sínar. Reynslan hefur líka sýnt, að lán þessi eru als ekki hættuleg. Jeg gerði nýlega fyrirspurn um það austur, hvað mikið hefði tapazt á þessum lánum og var svarað, að á þessum 25 árum, sem sjóðurinn hefur staðið, hafi tapið orðið einar 18 krónur.

Það getur verið, að eitthvað verði að takmarka útlánsstarfsemi sparisjóðanna, en pess verður að gæta, að það má ekki gera snögglega. Jeg skal leyfa mjer að taka 2 dæmi um það fyrir þennan sparisjóð, er jeg nefndi, hver yrði afleiðingin, ef 13. gr. þessa frumvarps, yrði að lögum. Í þeirri grein segir svo: „Eigi má samanlögð upphæð lána þeirra, er sparisjóður veitir eingöngu gegn sjálfskuldarábyrgð einstakra manna, nokkru sinni nema meiru, en þriðjungi af sparisjóðsinnstæðufjenu öllu.“ Við síðustu áramót átti sjóðurinn útistandandi í sjálfskuldarábyrgðarlánum kr. 361,983,88, en samkv. frumvarpinu mætti hann ekki eiga meira úti í sjálfkuldarábyrgðarlánum en kr. 194,916,67. Í víxlum hafði sjóðurinn útistandandi kr. 89,162,19, en mætti eftir frumvarpinu aðeins hafa kr. 58,475,00. Afleiðingin af þessari takmörkun, að því r sjálfskuldarábyrgðarlánin snertir, yrði sú, að sjóðurinn mætti ekkert lána út fyr, en búið væri að innheimta mismuninn, en það mundi taka að minsta kosti 3 ár, eftir greiðslum undanfarandi ára að dæma. Sparisjóðurinn yrði því algerlega að loka á meðan fyrir slíkum lánum, hve góð trygging sem í boði væri, Menn sjá, að svo snögg breyting mundi hafa mjög alvarleg og hættuleg áhrif á viðskiftalífið og því eiri, sem ekki væri annað að leita. Menn kunna ef til vill að benda á bankana í Reykjavík, en þeir gera ekki meira en að fullnægja Reykjavik, að því er slík lán snertir, enda hafa sveitamönnum reynzt þær dyr þröngar. Jeg sje því ekki, að viðskiftamenn þessara sjóða hafi þá nokkur úrræði. Takmörkuuin í 13. gr. er of þröng, og svo snögg breyting er beinlínis hættuleg og má ekki ná fram að ganga. Auk þess sem hún gæti orðið til stórhnekkis fyrir viðskiftalífið, þá gæti hún orðið sparisjóðnum til stórhnekkis, og til þess að aftra stofnun nýrra sparisjóða. Nefndin hefur líka sjeð þetta, þótt ekki hafi hún gengið lengra í breytingartillögum sínum, en hún gerir.

Það má færa það til gegn því, sem jeg hef sagt, að í 2. gr. sje stjórnarráðinu gefin heimild til að veita undanþágu frá einstöku ákvæðum laganna og gefa fresti til að fullnægja fyrirmælum þeirra. En jeg get ekki lagt mikið uppúr þessu ákvæði, sjerstaklega þegar þess er gætt, hvern skilning landsstjórnin hefur á þessu efni. Það er sem sje sagt — í athugasemdum stjórnarinnar við þessa grein, að skemra verði ekki með neinu móti farið. Jeg held því, að ekki sje mikið byggjandi á undanþáguheimildinni.

Þá tel jeg og mikið álitamál, hvort ákvæðin í 17. gr. muni ekki geta orðið til að draga úr starfsþoli sparisjóðanna. Sparisjóður Árnessýslu hefur hingað til haft 23,000 krónur fast í varasjóði, og það talið nægilegt, en eftir þessu frumvarpi ætti hann að hafa 581/2 þús. fast. Jeg álít varhugavert að skylda sparisjóðina til að setja þetta fje fast og flytja það í bankana ag kippa því þannig burt af starfsviði sparisjóðanna. í sambandi við þetta má geta þess, að Landsbankinn sækir nú um að mega gera varasjóð sinn að veltufje. Jeg skal fúslega fallast á það, að það beri að tryggja sparisjóðina sem bezt, en í þessu máli verður að fara með gætni og umfram alt forðast allar snöggar breytingar. Annað hefur hættulegar afleiðingar í för með sjer. Það væri t. d. hart, að neita efnuðum bónda um 1.– 200 kr. lán, ekki af því, að peningarnir væru ekki til, heldur af því, að þeir væru bundnir í banka suður í Reykjavík. Bóndinn yrði þá að fara til Reykjavíkur upp á von og óvon eða veðsetja jörðina sína í 2–3 mánuði.

Mjer er nú spurn, er nauðsynlegt að fara svona hart af stað ? Til þess þarf mikil hætta að vera á ferðum. En jeg get ekki sjeð, að svo augljós hætta vofi yfir, að ekki megi bíða og gefa sjer tíma til að athuga, hversu þessum málum verði bezt skipað. En þótt svo væri, að takmarkanir væru nauðsynlegar, yrði að gjalda varhuga við snöggum breytingum; þær verða að koma smátt og smátt. Annars gætu þær orðið hættulegar fyrir sjóðina og stórlamað starfsemi þeirra. Jeg sje því ekki ástæðu til að keyra fram ströng ákvæði á þessu þingi; virðist mjer, að heldur beri að safna betri upplýsingum og sníða svo stakkinn eftir þeim. Jeg skal svo ekki orðlengja frekar um málið að sinni; jeg mun greiða öllum breytingartillögum nefndarinnar atkvæði mitt; þær eru til bóta, og mun reyna að koma með frekari breytingartillögur við 3. umr. En rjettast og hættulaust þykir mjer að lofa málinu að bíða.