31.07.1913
Efri deild: 20. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 380 í B-deild Alþingistíðinda. (1791)
26. mál, sparisjóðir
Þórarinn Jónsson, framsögnmaður:
Háttv. 3. kgk, þm. (Stgr. J.) hefur að mestu svarað ræðu háttv. 2. þm. Arn. (J. J.), svo jeg get verið stuttorður að þessu sinni. Þó skal jeg leyfa mjer að fara nokkrum orðum um sjálfskuldarábyrgðarlánin. Mörgum finnast þau vera hættulegustu lánin, og það eigi að ástæðulausu. Þessi lán fara sívaxandi, og eru þá ýmsar eðlilegar ástæður fyrir því, að þau verða jafnframt ótryggari. Eftir því sem sjálfsábyrgðarmönnum fjölgar, eftir því erður það örðugra fyrir forstöðumenn banka og sparisjóða, að kynna sjer hag þeirra, og hafa vitneskju um þær breytingar, sem á honum kunna að verða. Þá er og ekki ólíklegt, að tryggingin, sem í sjálfskuldarábyrgðunum er fólgin, minki fremur en hitt, eftir því, sem lánin fjölga. Þegar litið er á Landsbankareikninginn 1912, sjest, að sjálfskuldarábyrgðarlánin eru þar orðin um 11/2 miljón króna, en fasteignaveðlán ekki nema um 28,000 kr. Sú spurning vaknar, þegar litið er á þessar tölur, hvort fasteignir í landinu muni vera orðnar svona veðbundnar, eins og tölur þessar benda á. Sem betur fer, mun það ekki vera. Ástæðan til þess, að menn leita svo lítið til bankanna með fasteignarveðslán, er sjálfsagt sú, að lánsskilmálarnir eru þar svo erfiðir, að menn skirrast í lengstu lög við að leita þangað; vilja heldur leita til sparisjóðanna, þótt borgunarfrestur sje þar að jafnaði stuttur, en að verða að taka móti veðdeildarbrjefum með svo og svo miklum afföllum. Það er satt, að nefndin telur það rjett, að takmarka ábyrgðarlán og víxillán nokkuð; en þó hygg jeg, að þar sje ekki farið svo langt, að ákvæði þau, sem hún vill að lögin geymi, þurfi að verða til að teppa að nokkrum mun útlán úr sparisjóðum. Þess er að gæta, að þó hún leggi til, að upphæð lána úr sparisjóð, sem eingöngu eru trygð með sjálfskuldarábyrgð, megi aldrei nema meiru en 1/3 af innstæðufje sjóðsins, þá er ekki takmörkum bundið, hvað lána megi út gegn fasteignarveði og einnig sjálfskuldarábyrgð; má gera ráð fyrir, að slíkt greiði allmikið fyrir lántökum, og að margur, sem á fremur rýrt fasteignaveð, er eigi þætti veita næga tryggingu eitt út af fyrir sig, mundi þó geta fengið lán, ef sjálfskuldarábyrgð væri líka fyrir láninu. Jeg skal játa það, að ákvæði 13. gr. um, að hvert sjálfskuldarábyrgðarlán skuli að fullu greitt á 10 árum, á að veita nokkra tryggingu, því sjálfskuldarábyrgðarlánin verða einatt ótrygg fyrir það eitt, að þau eru látin standa afborgunarlaus ár eftir ár, en þetta er enganveginn einhlítt. Reynslan hefur sýnt það, og svo mun enn fara.
Jeg skal játa það, að ýms lán gegn veði í húsum geta verið alveg eins ótrygg eins og sjálfskuldarábyrgðarlánin, og jafnvel viðsjálli. En það verður með þau, eins og með önnur lán, undir framsýni lánveitendanna komið, hvað hættuleg þau reynast. Þar sem jég þekki til, hefur hin mesta varúð verið höfð við þær lánveitingar. Og má því segja, að þar sje allra varlegast farið.
Yfir höfuð hygg jeg, að ákvæði 2. gr. muni reynast einhlít til að fyrra vandræðnm, á meðan verið er að koma sparisjóðunum og starfsemi þeirra í það horf, sem frv. ætlast til. Þá talaði háttv. 2. þm. Árn. (J. J.) um ákvæði 17. gr., og þótti honum þau mjög varúðarverð. En hjer á sama við, sem til er tekið í 13. gr., að ef ófyrirsjáanlegar útborganir koma fyrir, þá má í bili grípa til þess hluta varasjóðsins, sem 17. gr. ræðir um. En jeg get ekki gengið inn á það, að tekinn sje hver eyrir varasjóðs og settur í veltu. Varasjóðurinn á að tryggja sparisjóðinn allan, og hvern einstakan, sem fje á í honum, og það má ekki líta eingöngu á lánsþörfina; það þarf engu síður að tryggja þá, sem trúa sparisjóðnum fyrir fje sínu, og jeg hygg, að eigi sje ráðlegt, að hafa tryggingar minni, en nefndin leggur til. Jeg get samsint því, að 3, brtill. nefndarinnar sje óþörf, eins og háttv. 2. þm. N.- Múl. (E. J.) benti á. Þó hef jeg ekki heimild frá nefndinni að taka hana aftur að svo stöddu, en geri ráð fyrir, að hún verði fengin, áður en til atkvæða er gengið.
Aftur á móti verð jeg að telja það rjettara, að bætt sje við orðinu „innborgað“ á undan „ábyrgðarfje“ í 3. gr., því að hugsandi er, að einhverjir þeir, sem tekið hefðu að sjer ábyrgð á sparisjóðsfje, vildu reikna sjer vexti af ábyrgðarfje sínu, og færðu það sem ástæðu, að þeir hefðu orðið að festa það eða draga frá arðsömum fyrirtækjum, þó það væri ekki innborgað í sjóðinn. En nefndin telur það rjettast, að vextir þessir sjeu ekki reiknaðir af öðru tryggingarfje, en því, sem innborgað er.