04.08.1913
Efri deild: 22. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 403 í B-deild Alþingistíðinda. (1812)

32. mál, réttargangsmátinn við undirréttina á Íslandi, viðauki

Sigurður Eggerz, framsögumaður minni hlutans:

Jeg get verið stuttorður og vísað til þess, sem jeg segi um málið í nefndarálitinu. Aðeins ætla jeg að leiðrjetta eitt atriði í ræðu háttv. 3. kgk. þm. (Stgr. J.); hann kvað hjer það eitt bannað, að ólöglærðir gerðu sjer atvinnu að málarekstri, en þetta er ekki allskostar rjett, það er farið lengra. Mönnum er líka bannað að fela öðrum ólögfróðum mönnum en þjónum sínum og frændum rekstur mála sinna, þó annars hafi þeir það ekki fyrir atvinnu. En svo er líka annars að gæta; frumvarp þetta er þarf lítið fyrir lögfræðingana sjálfa; því að ef um nokkuð erfitt eða flókið mál er að ræða, þá mun verða leitað til lögfræðinga með það, þótt engin lagaskylda knýi til þess. Þegar aftur um smámál er að ræða og óbrotin, þá sýnist ástæðulaust að hindra menn frá því, að láta hvern þann reka þau, sem þeim sýnist.

Að vísu geta lögfræðingarnir notað lög þessi á einn veg sjér til hagsmuna. Ef svo færi, að þeir fengju nálega einkarjett til allrar málafærslu, þá væri það ekki nema mannlegt, þótt þeir gerðu samtök og hækkuðu verðskrá sína. En þótt mál þetta geti verið hagsmunamál fyrir lögfræðingana, þá má ekki einblína á það meira verður að meta hag almennings en þeirra.

Að öðru leyti virðist og stjórnin sjálf ekki líta svo á, að málfærsla ólöglærðra manna sje mjög skaðleg, þar sem hún gerir í frv. sínu ráð fyrir, að veita megi undanþágu frá lögunum þeim mönnum ólöglærðum, sem að undanförnu hafa fengizt við málafærslustörf.