04.08.1913
Efri deild: 22. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 406 í B-deild Alþingistíðinda. (1815)
32. mál, réttargangsmátinn við undirréttina á Íslandi, viðauki
Sigurður Eggerz, framsögumaður minni hlutans:
Jeg sje ekki, að háttv. framsm. meiri llutans (Stgr. J.) hafi tekizt að hrekja það, sem jeg sagði, að frv. ekki aðeins útilokaði ólöglærða menn frá því, að gera sjer málaflutningsstarf að atvinnu, heldur bannaði einnig, að þeir ólöglærðir menn flytji mál fyrir aðra, sem ekki væru frændur þeirra eða þjónar, þó málaflutningsstörf væru ekki atvinna þeirra. Hitt er rjett, að maður getur selt öðrum manni kröfu sína, og sá maður svo flutt málið; en þá hefur krafan skift um eiganda.
Jeg tek það enn fram, að hagsmunir almennings eru betur trygðir með núgildandi Iögum en þessu. Málaflutningsmönnunum er innanhandar að hækka verðskrár sínar, og getur svo farið, að. ókleyft verði fyrir fátæklinga að fara í smærri mál, og þeir neyðast til að láta vera að bera hönd fyrir höfuð sjer, þótt rjettur þeirra sje fyrir borð borinn. Reynslan hefur sýnt það, að með stærri málin er farið til lögfræðinga, en smærri málin eru að jafnaði svo óbrotin, að þeim er fullvel borgið í höndum ólöglærðra manna. Þetta frv. bætir því ekki úr neinni þörf; og jeg segi það enn, að hagur fjöldans á að vera þyngri á metunum, en hagur hinna fáu, lögfræðinganna.