04.08.1913
Efri deild: 22. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 408 í B-deild Alþingistíðinda. (1819)

14. mál, vitagjald

Sig. Stefánsson, framsögum.:

Eins og hinni háttv. deild er kunnugt, þá er þetta frv. borið fram af stjórninni og hingað komið frá hinni háttv. Nd. Þær breytingar, sem stjórnin fer fram á að gerðar sjeu á núgildandi lögum eru þær, að undanþegin verði vitagjaldi skip, sem hingað leita hafnar í neyð og skemtiferðaskip. Um hið fyrnefnda hata komið málaleitanir frá brezku stjórninni og utanríkisráðherra beint þeim til stjórnarinnar hjer Í vitagjaldslögunum stendur, að ráðherra Islands megi semja við stjórnir annara rikja um vitagjald af fiskiskipum, sem þaðan ganga. Enska stjórnin vildi fá und anþágu, að því er snertir skip, sem hingað leituðu hafnar í neyð, og er frv. þetta komið fram af þeim málaleitunum.

Um skemtiferðaskipin hef jeg aftur móti ekki heyrt að neitt „officielt“ hafi komið fram frá erlendum stjórnarvöldum. Stjórnin tekur það og fram í ástæðunum fyrir frumv., að svo hafi ekki verið, heldur hafi henni verið tjáð, að skip, sem eingöngu kæmu til skemtiferða, vildu gjarnan fá undanþágu frá þessu gjaldi. Í hv. neðri deild sætti þetta atriði talsverðum mótmælum, en þó varð það að samkomulagi þar, að samþykkja 15 a. lækkun á tonninu, eða úr 25 a. niður í 10 aura. Nefnd sú, er þessi hv, deild setti til að íhuga þetta mál, hefur orðið ásátt um það, að rjett væri að veita skipum, sem leita hafnar í neyð algerlega undanþágu; hún áleit það sjálfsagða mannúðar- og kurteisisskyldu, eins og hv. Nd. að taka þessa málaleitun til greina, enda svo um hnútana búið, að önnur skip en þau, sem leita hafnar í neyð, geta ekki smeygt sjer undir ákvæðið. Öðru máli gegnir um skemtiferðaskipin. Þar eru engar beinar orsakir til þess að sleppa gjaldinu, hvorki. áskoranir frá erlendum stjórnum eða annað og því virðist ekki ástæða til að veita hana. Það er eigi nóg, þó útgerðarmenn þessara skipa vilji helzt vera lausir við að greiða vitagjald.

Eins og lauslega er tekið fram í nefndarálitinu, þá varð nokkur ágreiningur um þessa undanþágu eða línun, og varð það að málamiðlun, að þessi skip skyldu hafa rýmri kosti en nú er, en hækka þó 10 aura gjaldið um 5 aura, svo að skemtiferðaskip greiddu 15 aura af smálest í stað 25, sem ákveðið er í vitagjaldslögunum. Það mælir sanngirni með því, að þau hafi lægra gjald, en mjög fátt með því, að þau sjeu gjaldfrjáls. Tonnatal þessara skipa er tiltölulega miklu hærra, en annara skipa, og að því leyti er sanngarnt, að þau gjaldi lægra vitagjald.

Það hefur verið sagt, að svo gæti farið, að ef engin linun væri gefin um vitagjaldið, þá mundu skipin hætta að koma og þá færi landið á mis við þann viðskiftahagnað, sem leiðir af komu þeirra. Jeg álít, að ekki sje svo mikið tillit takandi til þessa, að sleppa beri þessum tekjum, enda hefur það sýnt sig í sumar, að það hafa alls ekki komið færri skemtiferðaskip en að undanförnu. Það er ekki mikið leggjandi upp úr því, þótt útgerðarmenn vilji telja mönnum trú um, að skipin hætti að koma, þeir gæta auðvitað sinna hagsmuna. Í sumar hafa komið hingað til Reykjavíkur tvö akip, Grosser Kurfürst og Viktoria Louise, og hefur landssjóður haft 4000 kr. tekjur af þeim í vitagjaldi. Þessari upphæð vil jeg alls ekki kasta frá landssjóði. Auk þess álít jeg, að landið hafi alls ekki svo mikinn hag af 1–2 daga dvöl þessara skipa. Verzlun þeirra í landi mun ekki nema miklu, varla meiru en 1000–2000 kr. Jeg vil því ekki að óreyndu sleppa þessum tekjum alveg, en finst full kurteisi og sanngirni sýnd með því, að færa galdið niður um 10 aura frá því, sem nú er, eins og lagt er til í nefndarálitinu.