05.08.1913
Efri deild: 23. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í B-deild Alþingistíðinda. (1822)
22. mál, eftirlit með fiskveiðum í landhelgi
Steingr. Jónsson, framsögumaður:
Nefndin er samdóma hv. Nd. um það, að frv. þetta geti gert gagn, ef vel er áhaldið. Hún hefur því lagt það til, að samþykkja það óbreytt að efni til, en hefur komið fram með tvær orðabreytingar. Þær eru við 6. gr. Sú fyrri er um, að á eftir orðunum „innheimtu gjaldsins“ komi: „og reikningsskil.“ Nefndinni þótti rjettara, úr því að tekið er fram um innheimtu gjaldsins, að taka þá líka inn í lögin, að setja skuli í samþyktirnar reglur um reikningsskilin. Hin breytingartillagan er um það, að taka upp í lögin titil lögtakslaganna frá 16. des. 1885. Eins og það var í frumv., var það ógreinilega orðað, þar sem aðeins voru tiltekin lög frá 16. des.1885 án titils eða númers. Jeg hef svo ekki frekara um frv. að segja, en leyfi mjer að endurtaka tillögu nefndarinnar um, að frv. verði samþykt.