06.08.1913
Efri deild: 24. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 427 í B-deild Alþingistíðinda. (1832)

25. mál, sjódómar og réttarfar í sjómálum

Einar Jónsson:

Jeg vil að eins benda á, að í fyrstu brtill. nefndarinnar b-lið, þar sem farið er fram á, að í staðinn fyrir „sveitastjórna þeirra“ komi: „bæjarstjórna, hreppsnefnda og sýslunefnda“, er orðunum: „og sýslunefnda“ ofaukið, því þau mundu þá verða endurtekin í málsgreininni. Þar sem nefndin hefur lagt til í c og e lið 1. brtill. að orðin: og „bæjarstjórna“ verði feld burtu, er mjer ekki ljóst, hvers vegna nefndin vill leggja þetta til, því b-lið sýnist nefndin ekki heimfæra bæjarstjórnir undir sveitarstjórnir. Jeg mun því ekki greiða atkvæði mitt með breytingartillögunum c og e fyr en jeg fæ nánari upplýsingar um þetta frá nelndinni. í fyrstu málsgrein 2. gr. verður svo ákveðið eftir tillögum nefndarinnar, að áður en skipað er sjódómaþinghám, skuli leitað álits bæjarstjórnar, hreppsnefndar og sýslunefndar, sem hlut eiga að máli, en í 4. málsgrein sömu greinar er sagt, að ráðherra skipi sjódómsmenn, að fengnum tilögum hlutaðeigandi sveitastjórna. Þær tillögur munu nú vera þær sömu, sem átt er við í fyrstu málsgrein, en þá sýnist svo sem orðið „sveitarstjórnar“ í 4. málsgr. eigi að tákna bæði bæjarstjórnir og hinar eiginlegu sveitarstjórnir, þ.e. hreppsnefndir og sýslunefndir, en það er þó ekki samkvæmt því, sem annars er tíðkað í lögum vorum. Venjulegast mun orðið bæjarstjórn haft um stjórn bæjarmála í kaupstöðum, en sveitarstjórn um stjórn sveitarmála, hreppsnefndir og sýslunefndir og ætti svo einnig að vera hjer.

Í 6. gr. er talað um, „að stefna útgerðarmanni á persónulegt varnarþing hans“. Jeg hygg, að venja sje, að segja, „að stefna til varnarþings“, en ekki á varnarþing. í 9. gr. stendur: „Ef þörf er á túlk og enginn sjódómsmanna getur og vill túlka“. Þar hygg jeg að ætti að standa: „getur nje vill túlka“.

Í 14. gr. 2. línu stendur; „til dæmis af því“. Þetta finst mjer óviðfeldið orðalag. Til dæmis ætti að vera skammstafað og síðan standa „af því að“