06.08.1913
Efri deild: 24. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 430 í B-deild Alþingistíðinda. (1835)
31. mál, mannskaðaskýrslur og rannsókn á fundum líkum
Guðmundur Björnsson, framsögumaður:
Jeg mun láta mjer nægja, að segja örfá orð um þetta frv., þar eð því fylgja mjög ýtarlegar athugasemdir frá stjórninni, sem jeg býst við að háttv. deildarmenn hafi kynt sjer. Ástæðurnar til þess að frv. þetta hefur komið fram eru, að mannskaðar hjer á landi eru afskaplega tíðir, og fyrsta sporið í þá átt, að koma í veg fyrir þá, er að fá nákvæma vitneskju um alla mannskaða og tildrögin til þeirra. Þetta er markmið frv. Jeg skal geta þess, af því að hæstv. ráðherra er ekki viðstaddur, að frv. þetta og frv. um sjódóma og rjettarfar í sjómálum eru ekki fullkomlega í samræmi hvort við annað, og kemur það til af því, að þetta frv. var fyr tilbúið en hitt. Annars er munurinn sára lítill. Frumvörp þessi mætast, þegar um er að ræða mannskaða á skrásettum skipum. Sjódómslögin taka til þeirra mannskaða og annara ekki, en þessi lög eiga aðallega við mannskaða á landi.
Nefndin leggur það til, að þetta frv. verði samþykt og vill aðeins ráða til, að á því verði gerðar tvær breytingar.
1. breytingin er í því fólgin, að koma á samræmi milli þessa frv. og frv. um sjódóma þannig, að ákvæði þessa frv. komi ekki til greina, ef sjódómur rannsakar málið.
Á hina brttill. ætla jeg að minnast lítið eitt. Það hefur verið venja hjer á landi, að hreppstjórar senda skýrslur sínar til sýslumanns. Þeir hafa svo gert yfirlitsskýrslur fyrir hjeraðið og sent hana til stjórnarráðsins ásamt fylgiskjölum. Afleiðingarnar af þessu hafa orðið þær, að skýrslurnar eru afarlengi á leiðinni og ekki er unnið úr þeim öllum á sama hátt, nje með sömu vandvirkni, því sýslumenn eru misjafnlega vandvirkir, eins og gengur og gerist. Það er álit nefndarinnar, að til þess að fá sem áreiðanlegastan fróðleik sje æskilegt, að frumskjölin sjeu send vönum mönnum, sem vinni úr þeim öllum í einu lagi á sama stað. Þar sem hún telur víst, að frv. um stofnun hagstofu nái fram að ganga, vill hún leggja til, að löggæslumenn sendi skýrslur sínar beint til hennar. Með því ynnist, að fyr yrði unnið úr skýrslunum, og að unnið yrði úr þeim öllum á sama hátt; maður fengi fróðleikinn miklu fyr og áreiðanlegar. Jeg skal geta þess, að þessi aðferð er ekki alveg ný, heldur hefur hún verið reynd hjer áður. Það gerði jeg sjálfur árið 1898. Jeg hafði þá verið um hríð í Noregi til þess að undirbúa stofnun holdsveikraspítalans, og þurfti jeg nákvæmar skýrslur um, hve margir holdsveikir sjúklingar væru hjer á landi. Þá fjekk jeg því til vegar komið, að hreppstjórum var boðið að senda skýrslur um holdsveika beint til landshöfðingja, í stað þess að senda þær fyrst til sýslumanna, láta þá vinna úr þeim og senda sínar skýrslur til landshöfðingja. Afleiðingin var sú, að jeg var búinn að fá allar skýrslurnar í mínar hendur að tveim mánuðum liðnum, og var búinn að vinna úr þeim eftir 34 mánuði. Hin leiðin mundi að minsta kosti hafa tekið hálft ár.
Alveg sama dæmið kom fyrir, þegar jeg var að undirbúa yfirsetukvennalögin fyrir síðasta alþingi.
Það er því eindregið álit nefndarinnar, að ef menn vilja fá einhvern fróðleik greiðlega, þá er þetta einfaldasta og bezta aðferðin. Jeg vænti, að sýslumennirnir hafi ekkert á móti þessu, því að ljettir auðvitað störfum af þeim.
Vænti jeg svo, að háttv. deild samþykki þessa brtill., og að hæstv. ráðherra hafi ekkert á móti því, þó að aðferðin við skýrslusöfnunina sje dálítið önnur, en gert er ráð fyrir í stjórnarfrumvarpinu.