15.07.1913
Neðri deild: 11. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 224 í C-deild Alþingistíðinda. (184)

47. mál, styrktarsjóður handa barnakennurum

Lárus H. Bjarnason:

Eg ætla að eins í framhaldi af því, sem háttv. síðasti ræðumaður sagði, og til að spara þingm. ómak, að leyfa mér að lesa upphafið af erindi frá inu ísl. Kennarafél., um styrktarsjóð handa barnakennurum, sem hefir verið lagt fram á lestrarstofunni.

Það hljóðar svo:

“Á aðalfundi ins íslenzka Kennarafélags í gær (þ. 25. Júní þ. á.), var með öllum atkvæðum samþykt svolátandi tillaga:

Fundurinn felur formanni Kennarafélagsins að hlutast til um, að frumv. til laga um breyting á lögum um styrktarsjóð handa barnakennurum, sem Neðri deild Alþingís samþykti á síðasta þingi, verði aftur lagt fyrir Alþingi í ár . . .„.

Aðalástæðan, ef ekki einkaástæðan, í fyrra á móti frumv. var sú. að málið væri eigi nægilega undirbúið, þar eð ekki lægi fyrir beiðni um hærri styrk, nema frá einstökum meðlimum Kennarafélagsins. Nú er bætt úr þessu, og vona eg, að deildin láti málið ganga til 2. umr. nefndarlaust.