02.08.1913
Efri deild: 25. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í B-deild Alþingistíðinda. (1840)

93. mál, hallærisvarnir

Júlíus Havsteen:

Það er með hálfum hug, að jeg stend upp til þess að tala um þetta mál, því jer lízt svo, sem að háttv. nefnd hafi litið tillit tekið til orða minna við fyrstu umræðu. Það kann nú að vera, að það sje af því, að jeg er orðinn gamall maður. (Sigurður Stefánsson: Oft er það gott, er gamlir kveða). og af því að jeg var embættismaður árið 1882, þegar hallærið var á Norðurlandi, og hefði þá átt að hafa nokkurt aðaleftirlit og umsjón nokkra með því, að allir hefðu nóg í mínu umdæmi. En vegna þess, að það eiga fleiri setu hjer í háttv. deild, en háttv. nefnd, þá vil jeg þó segja nokkur orð.

Jeg lít svo á, að þetta frumv. sje með öllu óþarft, og það sje svo langt frá því, að það geti gert gagn, að það geri miklu fremur skaða. Það verður til þess, að menn fara að sýna tómlæti og hætta að hugsa um sjálfa sig, en líta svo á, að ef eitthvað bjáti á, þá geti þeir hlaupið í þennan sjóð. Það eru nokkur ár, síðan að samþykt voru lög um kornforðabúr, og hafa þau verið lítið notuð, og væri nær að gera meir að því, að nota þau.

Það er ekki ástæða til þess, að ætla, að hallæri komi um land alt, ef um hallæri er að ræða, þá getur það komið yfir einstakar sveitir, en þá geta hinar sveitirnar bætt úr því, og hlaupið undir bagga með þeim, er fyrir því verða. Það verð jeg að telja langt um heppilegra. Alt öðru máli er að gegna um þetta en áður var. Samgöngur eru nú miklu betri en áður, og landbúnaður yfirleitt betri; auk þess sem símarnir eru komnir. Það er alt í betra horfi en áður.

Nefndin segir hjer í áliti sínu, að eina tryggingin gegn hallæri sjeu járnbrautir. En mjer er spurn, geta ekki járnbrautir stöðvast af snjó alveg eins og skip af ís? Jeg hygg, að svo sje.

Jeg sýndi fram á það við fyrstu umræðu þessa máls hjer í háttv. deild, að það sje engin ástæða til þess að hræðast ís. Og að því ber að gæta, að nú hafa skipstjórar fengið æfingu í að sigla um ís, en um árið 1880 voru þeir hræddir, ef þeir sáu hafísjaka, jafnvel þó að lítill væri, og sneru aftur.

Útdráttur sá úr landhagsskýrslunum, er háttv. nefnd kemur fram með, sýnir ekkert um nytsemi þessa máls. Hann er því óviðkomandi.

Hjer er að ræða um nýtt gjald á alþýðu manna, og það er komið langt um meira en nóg af gjöldum á þjóðina. Menn eru orðnir þreyttir af sífeldum gjöldum og vilja ekki meira af þeim. Nefskattur er ranglátur, og þótt sveitarstjórnirnar megi jafna niður gjaldinu eftir efnum og ástæð um, þá er jeg sannfærður um, að það yrði ekki vinsælt.

Jeg tel því bezt, að láta mál þetta bíða, og hugsa fremur um stofnun og efling kornforðabúra.