08.08.1913
Efri deild: 26. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 462 í B-deild Alþingistíðinda. (1851)

47. mál, styrktarsjóður handa barnakennurum

Steingr. Jónsson:

Jeg ætla að taka fram það álit mitt, að varhugavert sje, að leggja fram úr landssjóði fjárstyrk þann, sem farið er fram á í frv. þessu, því að það stefnir í sömu átt, sem ýms önnur frv., sem fram hafa komið á seinni þingum, nefnilega að skifta landssjóðnum niður í ýmsa smærri sjóði, sem hin árlegu þing hafa engin umráð yfir: Jeg mun þó greiða atkvæði mitt með þessu frumvarpi vegna þess, að jeg hygg, að með því sje lagður grundvöllurinn undir, að alþýðukennarastjettin komist á eftirlaun, og að þau verði miðuð við eftirlaun þau, sem embættismönnum eru ætluð í eftirlauna, lögunum frá . marz 1904.

Þetta frv. er að vísu ekkert eftirlaunafrumvarp, en meiningin er þó að komast að sama takmarki með því og með eftirlaunalögunum. Jeg mun því eins og jeg áður sagði, greiða atkvæði mitt með þessu frv. í þeirri von, að hjer sje um stefnubreytingu að ræða, og að auga alþýðu muni brátt opnast fyrir því, hve heimskuleg sú stefna er að vilja afnema eftirlaun embættismanna, hve heimskulegt það er, að halda, að þau. sjeu skaðleg og útgjaldaauki fyrir landið, í stað þess, að þau eru nauðsynleg og sjálfsögð og til sparnaðar fyrir þjóðina.