08.08.1913
Efri deild: 26. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 463 í B-deild Alþingistíðinda. (1854)
47. mál, styrktarsjóður handa barnakennurum
Sigurður Stefánsson:
Jeg get fullkomlega skrifað undir það með háttvirtum 3. konungkjörna, að það, sem farið er fram á í þessu frumvarpi, er að tryggja kennurum nokkurs konar eftirlaun, og jeg ætla ekki að fyrirdæma frumvarpið fyrir það. En annað mál er, hvort tillag það, sem farið er fram á að veita úr landssjóði er ekki fullhátt eða hvort það ákvæði, að láta það falla niður að 9 árum liðnum, hefur mikla þýðingu. Jeg býst við, að þegar sjóðurinn er orðinn 50 þús. kr., muni eftir sem áður verða farið fram á riflegt tillag úr landssjóði; eftir því em þessari kennarastjett fjölgar, mun hún eiga öflugri flutningsmenn þessa máls á þingi.
Það hefur verið sagt til sönnunar því, að hjer væri um alt annað en eftirlaun að ræða, að einungis þeir kennarar, sem heilsulausir væru og styrks þörfnuðust, ættu að fá tillag úr sjóðnum. En úr þessari sönnun gjöri jeg ekki mjög mikið. Þótt hjer sje ekki um almennan eftirlaunarjett kennarastjettarinnar að ræða, þá mun reynslan sýna, að þessi eftirlaun verða ærið almenn fátækt þessara uppgjafakennara verður víst mjög almenn, og þá ekki síður aðrir verðleikar þeirra til þessa styrks, því á verðleikum er aldrei neinn hörgull, er um það er að ræða að ná í einhvern opinberan styrk; við þann pottinn eru allir einstakir sæmdar- og dugnaðarmenna, sem alls góðs eru maklegir.
Við vitum það, að þingmenn eru á hverju ári að koma með alskonar eftirlaunapósta inn á þingið, ýmist fyrir landpósta eða einhverja aðra. En hvað mundi verða, ef öll lögákveðin eftirlaun væru afnumin.
Jeg mun greiða atkv. með þessu frumvarpi vegna þess, að jeg álít að það gangi í rjetta átt, og vegna þess að það sýnir, að þeim mönnum, sem hæzt glamra um afnám eftirlauna, er ekki alvara með öllu þessu glamri sínu.