08.08.1913
Efri deild: 26. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 466 í B-deild Alþingistíðinda. (1858)
47. mál, styrktarsjóður handa barnakennurum
Þórarinn Jónsson:
Jeg ætla ekki að tala um brtill. nefndarinnar, en þar sem sagt var, að með þessu frv. kæmum við inn á nýja braut, eftirlaunabrautina, þá get jeg eigi sjeð, að svo sje, því mjer virðist, að það, sem hjer er farið fram á, standi í alls engu sambandi við eftirlaun, heldur sje alt annars eðlis.
Hv. þm. Strand. hjelt, að síðar mundi lögunum verða breytt og tillagið hækkað. Um þetta getum við bara spáð, og það er ekki á okkar ábyrgð, þótt svo verði. Okkar skylda er að ganga svo frá þeim, eins og við álítum rjett og sanngjarnt, án nokkurs tillits til þess, hvað síðari þing muni gera.
Hv. þm. Ísaf. talaði mikið um, að nú væri farið að koma inn á þingið með allskonar eftirlaunapósta, og þótti það bera vott um, að þinginu væri ekki alvara með að afnema eftirlaun. En hjer er ekki um nein eftirlaun að ræða; ef þetta ætti að vera í sambandi og samræmi við eftirlaunalögin, þá þyrfti að breyta eftirlaunalögunum á þá leið, að þeirra nytu ekki nema þurfandi og verðugir. En nú á það gagnstæða sjer stað. Eftirlaunin ganga jafnt yfir alla. Hjer er aðeins um það að ræða, að styrkja þá, sem hjálpar þurfa og geta ekki bjargað sjer sjálfir, og ef menn athuga þetta, munu menn glögt sjá muninn á eftirlaununum, eins og þau gerast nú, og þeim styrk, sem hjer er um að ræða.
Hv. þm. Strand. sagði, að menn gerðu það til þess, að geðjast kjósendum, að tala á móti eftirlaununum, því það væri alþjóðarvilji, að eftirlaun væru afnumin. Er það þá þessvegna, að hann er þeim svo meðmæltur ? En þessi orð hans get jeg ekki tekið til mín. Jeg hef einmitt reynt að sýna kjósendum mínum fram á, að ef eftirlaun verða afnumin, muni afleiðingin verða sú, að launin hækki og þá vafasamt, hvort það hafi minni útgjöld í för mað sjer en eigi að siður eru eftirlaunin óeðlileg og órjettlát. Betra að hafa rjettlætið, þótt dýrara reyndist.